Vera


Vera - 01.12.1999, Qupperneq 38

Vera - 01.12.1999, Qupperneq 38
JólÍH/ erw íbÓ (comAs, síðcuv áramJtuv oj alcLmiótuv. Huívðcv tUjwMÚujar bœrast v koujov okkar? Hvernuj Lvtcv la/mréttutcLaJcoiiMr /j'mvbu Utar ávjóUrv oj konuwAi öLU? Vvð báðimv fjórar Lcokmt akð kMjLevðas J>ettas. Sáv eUtas, KjartrweLj Löirv kenrtar/ irerður ávttrceð euertas uuptar. Henrw jirtrut kárv kajcv irtrvsýpv v Jrrjár a/Mr - 19. öUJrtcv vjejKMMv ömjmmt /uvar ocj imömmvov, 20. öLcUrtcv oa 21. öLcUrtcv mrð Jwv cvð jáv cvðJreýas ajkertrtv. HíUUtr JónrcLóttir jajkréttLráðcjjafv ReykjaMtkurborcjar er jcedA ujrjr úr mJðrv ölAirtrw erv Kojirtrtcv BaJAvirudóttir ocj Þorcjerður ÞoruaJcUdóttir umv 20 árunv úðar. Tíminn er vefur atburða. Ef ekkert gerist sem markar spor eða myndir í tímavefinn, líður hann hjá hljóðlaus, óáþreifanleg- ur og ósýnilegur inn í eilífðina og hefur í sjálfu sér hvorki upphaf né endi. Þannig er það þó sjaldnast. Við erum iðin við að safna og skapa myndir í tímavefinn okkar. Af og til vindum við ofan af vefnum, horfum til baka og virðum fyrir okkur það sem var. Eins getum við horft fram og hugleitt hvað verða muni. Við getum sett okkur fyrir hugarsjónir þær breyt- ingar á vefnum sem framtíðin ber í skauti sér. Ég vind ofan af vefnum mínum og lít til baka: Þarna er hún Björg, langamma mín. Hún kenndi mér að lesa. Þá var ég fimm ára en hún 75. Ég vissi það ekki þá hversu nátengd ég var 19. öld- inni. Langamma var fædd árið 1850. Hún var klædd að hætti síns tíma, f þröngri treyju og síðu pilsi. Svuntan hennar var röndótt, gróf og slitsterk. Á herðum bar hún fallega ullarþríhyrnu. Langamma var ekki há vexti, en hnarreist og tígul- leg. Allt var hjá henni í föstum skorðum, rólegt og óhagganlegt. Hún átti rokk og rúm og prjóna, nokkrar bækur, borð og stól, en fátt annað. Hana skorti samt ekkert. Sauðskinnsskórnir voru hennar eftirlætisskór. Þá notaði hún bæði innan húss og utan, nema þeg- ar hún fór niður í miðbæ, en það gerði hún sjald- an. Skólavörðuholtið var hennar holt og þangað dugðu sauðskinnsskórnir. Af mikilli samviskusemi og festu kenndi hún mér að stafa og kveða að og allt í einu gat ég lesið. Þá var stafrófskverið Ifka búið og langamma kom með Gamla testamentið. Það var leiðinleg bók. Hún var þung í meðförum. Orðin í henni voru löng og óskiljanleg. Þar hét gullið bedolakharpes aðrir dýrgripir voru kallaðir sjóarsteinar. Allt of margir voru óguölegir. Þeir áttu yfir höfði sér ógn- ir og skelfingar. Ég hætti að lesa. Við amma kvöddumst með kærleikum. Hún gaf mér að skilnaði kakó og rjómaköku, annars gaf hún mér venjulega mjólkurbland og vínarbrauð. Langamma klappaði mér aldrei á kollinn og strauk mér aldrei um vanga. Blíðuhót voru henni ekki töm, en hún var ábyrgðarfull, umhyggjusöm og nærgætin. Ég rek vefinn áfram. Þarna koma jólin í allri sinni dýrð. Heima í litlu stofunni okkar á Bergstaðastíg er mamma önnum kafin við að búa okkur systurnar á jólaball. Það er Ölduballið, eitthvert fínasta og íburðarmesta jólaball bæjarins. Skipstjóra- og stýrimannafélagið Aldan stóð fyrir hátíðinni og ef maður var svo lánsamur að vera með einhverjum hætti tengdur þeim mætu mönnum, var greiður aðgangur að jólagleðinni. Þarna mættum við syst- urnar eins fínar og ætlast var til, líkt og englabörn 38 • VERA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.