Vera


Vera - 01.12.1999, Page 51

Vera - 01.12.1999, Page 51
liggja f rúminu með mæli bundinn utan um sig. Ef hún vildi bera sig öðruvísi að, til dæmis hreyfa sig um eða fæða krjúpandi, var því nánast ekki við- komið á deildinni. Ein Ijósmóðir sem Sheila ræddi við sagði að ef mæður vildu eiga val- kost á fyrsta stigi fæð- ingar, þ.e þegar hrfðar- nar vinna hægt og ró- lega að því að opna leghálsinn, ættu þær ekki að koma inn á deildina fyrr en annað stig fæðingar væri að nálgast. Á ómeðvitaðan hátt tóku Ijósmæðurnar þátt í því að grafa undan rétti móðurinnar til að ráða yfir eigin líkama. Konan var afklædd og gert að klæðast spítalaslopp við innkomu, hún var skoð- uð að neðan og mælir bundinn um hana. Elún var gerð að sjúklingi sem frá og með innlögn var í höndum starfsfólksins sem vann ötulum höndum að því að henni myndi batna. Það var mikilvægt fyrir Ijósmæðurnar að halda ávallt stofum lausum fyrir konur sem komu inn á sfðustu stigum fæðingar og fæddu á mjög skömmum tíma. Miklu máli skipti að greina konu rétt þegar hún kom inn og taldi fæðingu hafna. Ef Ijósmóðir mat ástandið svo að konan væri komin í fæðingu þá var hún lögð inn, en ef fæð- ingin tók síðan langan tíma að komast á skrið urðu Ijósmæðurnar gjarnan pirraðar. Allt miðað að því að flýta fæðingunni Sheila komst að þvf að Ijósmæðurnar flokkuðu konur sem komu inn í tvo hópa, annars vegar hin- ar dugmiklu (the labourers) og hinsvegar hinar lötu (the nigglers). Sú sem ekki var „dugleg", var ekki komin á gott skrið í fæðingu, fékk ekki jafn gott viðmót eða góða þjónustu og hin sem gekk betur. Hún var álitin „slæmur sjúklingur" þar eð legháls hennar hafði ekki opnast nægilega. Þetta er mjög athyglisvert og ætti að vekja starfsfólk fæðingardeilda til umhugsunar um hvernig það á ómeðvitaðan hátt tekur á ólíkan hátt á móti kon- um. Inngrip í fæðingar voru mjög algeng á þessum fæðingardeildum. Mæður voru oftast ekki spurð- ar að því hvort þær vildu láta sprengja belginn eða fá pethidin-sprautu. Allt miðaði að því að flýta fæðingunni sem greinilega var talin óvel- komin og þjáningarfull reynsla fyrir hina verðandi móður. Athygli Ijósmæðra beindist nær alfarið að öðru stigi fæðingarinnar, þ.e. hinni eiginlegu út- færslu barnsins. Andrúmsloftið gerbreyttist þegar að því kom, spenna og eftirvænting lá í loftinu. Sheila veitti því athygli að Ijósmæðranemum var mikið í mun að fá að vera viðstaddir sem flestar fæðingar en létu sér síður annt um að fylgjast með konu fyrir og eftir fæðingu. Ef nokkrar kon- ur voru á öðru stigi fæðingar á sama tíma var mikið álag á Ijósmæðurnar sem hlupu á milli stofa. Þær andvörpuðu þá gjarnan stundarhátt hvað væri að þessum konum að fara allar af stað (einu. Sheila varð vör við að Ijómæðurnar treystu mæðrunum ekki til að dæma um eigið ástand. Hún heyrði þær oft segja í símann við konur sem töldu sig vera komnar af stað að þær ættu þá bara að koma inn svo að þær, Ijósmæðurnar, gætu ékvarðað hvort fæðing væri hafin. Sheila nefnir sláandi dæmi um það hvernig Ijósmæður töldu að einungis þær gætu skorið úr um gang fæðingar. Ein móðir sagði til dæmis að hún upp- lifði sterkar hríðar en Ijósmóðirin svaraði henni að sér fyndist þær nú vera frekar veikar. Önnur Ijós- móðir sagði konu sem stóð í polli af vatni að leggjast á bekk svo hún gæti athugað með bómullarpinna hvort vatnið væri farið! Fleiri slík dæmi er að finna í S. kafla bókarinnar. Einnig var mjög algengt að Ijósmæður notuðu ákveðið orðfæri, samskonar og foreldri notar við barn sitt, til að koma konunni (skilning um að hér væri það Ijósmóðirin sem réði. Hún vissi hvað væri fyrir bestu. Sheilu varð Ijóst að sumum konum fannst óþægilegt að láta tala svona við sig en létu sig þó hafa það. Hún ræddi við mæður bæði fyr- ir og eftir fæðingu og varð Ijóst að þær gerðu litl- ar sem engar kröfur til þjónustu Ijósmæðranna. Orð einnar sátu föst í huga Sheilu: „Ég er á lífi, ég hef son minn í fanginu, hvað meira get ég beðið um?" Sheila veitti vaktaskiptum sérstaka athygli eins og fyrr segir og komst að því að gæði upplýsing- anna sem fóru á milli tveggja Ijósmæðra um til- tekna konu voru nátengd því hversu mikið legháls hennar hafði opnast. Mestu upplýsingarnar fóru fram ef konan hafði útvikkun á bilinu 7-10 cm og annað stig fæðingar hafið eða að hefjast. Og ein- ungis þá fóru vaktaskiptin fram inn í fæðingarher- berginu og konan fékk að vera með. Oftast fóru vaktaskipti þó fram ( vaktherberginu eða á ganginum, ef mikið var að gera, og voru þá eingöngu gefnar mjög takmarkaðar upplýs- ingar. Athyglisvert er að ef Ijósmæðranemar voru kallaðirtil aðveita upplýsingar var þeim gert að tala á lækna- máli, þ.e. tala um kon- urnar og gang fæðing- arinnar á svo til óskilj- anlegri latínu. Sheila skildi ekki hver væri tilgang- urinn með þessu þar sem Ijósmæður notuðu sjaldan slíkt orðalag sín á milli. Verðandi mæður eru ekki sjúklingar Bókin The Social Meaning of Midwifery á sannar- lega erindi við bæði leikmenn og lærða sem hafa áhuga á að skilja hvaða merkingu barnsfæðing hefur ( nútímasamfélagi og hvaða skilning Ijós- mæður leggja í starf sitt. Hún ætti einnig að nýt- ast þeim sem vilja skoða hvernig hægt væri að bæta þjónustu við verðandi mæður og fjölskyldur þeirra. í auknum mæli er farið að bjóða upp á persónulegri og nánari þjónustu, l(kt og MFS- deildin (meðganga-fæðing-sængurlega) á Land- spítalanum býður upp á. Markmiðið hlýtur að vera að öllum mæðrum bjóðist slík þjónusta enda tel ég að sú hugsun sé að verða ríkjandi að verð- andi mæður séu ekki sjúklingar og að konan sé sjálf við stjórnvölinn, hún finni best hvað sé að gerast í eigin líkama. Með bók sinni minna Sheila Hunt og Anthea Symonds okkur á að ýmis form á samskiptum festast í sessi og valda því að við hegðum okkar ómeðvitað á tiltekinn hátt. Með rannsókn sinni hefur Sheilu Hunt tekist að varpa Ijósi á hið hulda tákn- og merkingarkerfi sem markar skilning Ijós- móður á starfi sínu og hefur ótvíræð áhrif á hvernig þjónustu hin verðandi móðir hlýtur. Rann- sókn hennar á þessum tveimur tilteknu fæðingar- deildum í Skotlandi hvetur Ijósmæður til að rýna í eigin störf og eigin skilning á því hvers eðlileg barnsfæðing þarfnast. Höfundur er BA í heimspeki og við MA-nám í uppeldis- og menntunarfræði við HÍ. Hún er móðir fjögurra barna á aldrinum 2-13 ára. VER A • 51

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.