Vera - 01.12.1999, Side 66
k v e n n a
Þ r ó u n
reykinga
í gegnum söguna hafa reykingar
tengst sjálfstæðisbaráttu kvenna.
Kvenréttindakonur, sem flestar voru
vel menntaðar og af efnuðu fólki,
byrjuðu að reykja um aldamótin.
Nokkrum árum síðar voru ungar yfir-
stéttarkonur farnar að reykja í veisl-
um og þótti það mjög glæsilegt.
Fljótlega upp úr 1950 fóru tóbaks-
framleiðendur að beina auglýsingum
sínum markvisst að konum en þær
voru hinn óplægði akur. Hér á landi
er líklegt að reykingar karla hafi náð
hámarki á árunum 1960-70 en reyk-
ingar kvenna á árunum 1970-80.
0
I
I kjölfar aukinnar þekkingar hafa reykingar
minnkað hjá menntuðum konum en aukist hjá
þeim sem hafa minni menntun og erfiðari félags-
legar aðstæður. Samkvæmt WHO (Alþjóða heil-
brigðisstofnuninni) hefur komið fram að þær
konur sem telja sig geta haft áhrif á eigið líf og
heilsu reykja síður en konur sem finnst þær hafa
litla stjórn á Iffi sínu.
Eftir þvf sem þátttaka kvenna f atvinnulífinu
hefur aukist hafa þær jafnframt aukið reykingar.
Launuð vinna hefur bæst við hin hefðbundnu
ólaunuðu störf og sífellt aukast kröfurnar sem
gerðar eru til kvenna. Hlutverkum nútfmakon-
unnar fer sífellt fjölgandi sem óhjákvæmilega hef-
ur í för með sér aukna streitu. Hún er móðir, eig-
inkona, fyrirvinna, dóttir og svo mætti lengi telja.
Þessi nútímakona leggur metnað sinn í að standa
sig á öllum sviðum.
I dag beinist áróður tóbaksframleiðenda að
ungu fólki og er einkum höfðað til þeirrar ímynd-
ar að konan eigi að vera há, grönn, frjáls, vinsæl,
eftirsóknarverður félagi, sjálfstæð og fullorðin.
Daglegar reykingar kvenna (18-69 ára) á íslandi
hafa minnkað úr 37% árið 1985 í 28% árið
1997. En á sama tíma hafa daglegar reykingar
karla (18-69 ára) minnkað úr 43% í 30 %. Af
þessu má sjé að meira hefur dregið úr reykingum
karla en kvenna.
Líffræðileg áhrif reykinga á konur
Almenn þekkt áhrif reykinga eru aukin hætta á
sögulegu
hjarta- og æðasjúkdómum, aukin tíðni krabba-
meins, lungnasjúkdóma og ýmissa annarra sjúk-
dóma. Líkamleg áhrif reykinga koma yfirleitt ekki
fram fyrr en u.þ.b. 20-40 árum eftir að þær
hófust.
Auk þess hafa reykingar víðtæk og óæskileg
áhrif é allan kvenlíkamann. Frjósemi minnkar,
fylgikvillum é meðgöngu fjölgar og auknar líkur
eru á sjúkdómum hjá ófæddum og nýfæddum
börnum. Nikótín fer auðveldlega um fylgju til
fósturs. Styrkleiki nikótíns I blóði fósturs verður
meiri en ( blóði móður og það er lengur að skilj-
ast út hjá fóstri. Það má því segja að eftir því sem
fleiri konur á barneignaaldri byrja að reykja, hlýt-
ur heilsa ófæddra barna að vera í aukinni hættu.
Börn sem kynnast nikótíni í móðurlífi verða fyrr
háð því ef þau byrja að fikta við reykingar síðar.
Tíðahvörf verða 2-3 árum fyrr en hjá reyklausum
konum. Aukin hætta er á beinþynningu þar sem
reykingar hafa letjandi áhrif á myndun estrogens
(sem er mikilvægasta hormónið til að hindra bein-
þynningu). Einnig eykst tíðni leghálskrabbameins.
Hjá konum sem reykja og nota P-pilluna eykst
hættan á blóðtappa 23 sinnum miðað við konur
sem ekki reykja. Einnig er vitað að reykingar geta
minnkað áhrif ýmissa lyfja hjá konum.
Við sígarettureykingar lækkar súrefnismettun
blóðrauðans um 3-7%, sem leiðir til aukinnar
seigju blóðsins og hættu á blóðtappamyndun.
Sígarettureykingar auka hættu á lungna-
krabbameini meira meðal kvenna en karla.
I j ó s i
Áhættan eykst eftir því sem meira er reykt. Þannig
eru konur sem reykja 25 eða fleiri sígarettur á dag
í 44 faldri áhættu, en karlar í 29 faldri áhættu
miðað við þá sem aldrei hafa reykt.
Dánartíðni hjá konum af völdum reykinga hef-
ur stóraukist. Þriðjung af öllum dauðsföllum hjá
konum vegna krabbameins má rekja beint til
reykinga og í dag deyja fleiri konur úr lungna-
krabbameini en úr nokkrum öðrum sjúkdómi. Að
minnsta kosti ein af hverjum fjórum konum sem
reykja munu deyja fyrr en ella vegna fíknar sinnar.
Stúlkur eru að jafnaði með minni lungu og
þrengri berkjur en strákar Þess vegna verða áhrif
reykinga meiri á lungnavef stúlkna.
Hvers vegna byrja konur að reykja ?
Sífellt fleiri konur um allan heim byrja að reykja og
hafa afleiðingar þess í för með sér víðtækan
heilsufarsvanda fyrir allt mannkynið. Ástæður
þess að ungar konur í hinum vestræna heimi byrja
að reykja í dag eru fyrst og fremst tengdar útliti,
(mynd og áhrifum frá umhverfinu. Tóbaksfram-
leiðendur hafa opinberlega viðurkennt að ungar
konur eru aðalmarkhópur þeirra. Þeir markaðs-
setja vörur sem eru sérstaklega hannaðar fyrir
konur og eiga að höfða frekar til þeirra. Einnig
auglýsa þeir sérstaklega í kvennatímaritum og
styrkja þau gegn því að ekki komi fram í þeim
upplýsingar um skaðsemi reykinga.
Unglingsstúlkur eru oft með lítið sjálfstraust
og óraunhæfa sjálfsmynd og það er staðreynd að
66 • VERA