Vera - 01.12.1999, Page 72
-jólabœkurnar bókadomar
Svona
er þetta
í róti hugans
eftir Kay Redfield
Jamison
Mál og menning
1999
Undanfarin ár hefur
umræðan um geðsjúk-
dóma og geðheilbrigð-
ismál breyst þó nokkuð. Hún hefur orðið opnari,
einnig hér á landi, þótt enn sé þessi þáttur lífsins
hulinn hjúpi vanþekkingar og því miður oft for-
dómum. Fræðsluþættir eru búnir til og viðtöl tek-
in við sjúklinga, aðstandendur og síðast en ekki
síst sérfræðinga á þessu sviði. Fræðslan er oftar
en ekki háð því hversu mikið fagfólkið leggur upp
úr því að fræða og miðla þekkingu sinni á mann-
legu eðli, og umhverfi og orsakavöldum geðsjúk-
dóma. En það er ekki nóg að fagfólk tjái sig um
þessi flóknu og viðkvæmu mál. Notendur þjón-
ustunnar, þ.e.a.s. sjúklingarnir, eru farnir að láta á
sér kræla, rödd þeirra gerist æ háværari og það er
notað sem mælikvarði á góða þjónustu þar sem
sjónarmið og viðhorf sjúklinga eru sjáanleg. Sama
á við um vaxandi þátt þeirra í uppfræðslu og um-
ræðum um hvaða afleiðingar það hefur að þjást
af geðsjúkdómi.
Það er því mikill fengur þegar virtur fræðimað-
ur á þessu sviði, sem þjáist sjálfur af alvarlegum
geðsjúkdómi, skrifar bók um reynslu sína. Þetta er
bókin ( róti hugans eftir Kay Redfield Jamison,
bandarískan sálfræðing sem hefur I rúm 25 ár
barist við geðhvarfasýki og afleiðingar hennar. I
bókinni lýsir hún sjálfri sér og fjölskyldu sinni, frá
hamingjusömum bernskudögum og sveiflu-
kenndum unglingsárum þegar fyrst fer að bera á
geðsveiflum, að glæsilegum námsferli ( háskóla
þar sem hún ætlaði 'að leggja stund á læknis-
fræði. Kay söðlar um og leggur stund á sálarfræði
og rannsóknir, tekur doktorsgráðu og fer að
kenna nemum í læknisfræði. Nýfarin að kenna
veikist hún alvarlega af sínu fyrsta geðhæðarkasti
og smátt og smátt verður henni Ijóst að hún þjá-
ist af geðveiki. Þrátt fyrir þetta á hún að baki sér-
lega metnaðarfullan og glæsilegan feril, bæði
sem vísindamaður og kennari. [ bókinni birtist
hún sem mjög greind, áköf og hrifnæm kona
með mikinn áhuga á vísindum.
Hún lýsir umhverfi sínu í æsku sem stffum og
ósveigjanlegum heimi þar sem siðalögmál hersins
giltu og henni er kennt að vera tillitssöm, kurteis
og gætin. Þessi lögmál gilda þegar manneskjan
hagar sér á vitsmunalegan hátt. En ekkert uppeldi
undirbýr manneskjuna undir það að missa vitið,
að verða ófær um að hugsa rökrétt og hegða sér
samkvæmt viðteknu hegðunarmynstri. Geðofsi
og ofbeldisfull hegðun skelfir umhverfið, veikir
sjálfsmyndina og brýtur niður sjálfstraustið og er
oft sérstaklega erfið konum þar sem hegðunin er
í hrópandi ósamræmi við viðteknar siðvenjur.
Þetta gerist I geðhæðarköstunum, sem I fyrstu
eru eins og ölvun, veita nautn og óþrjótandi orku
en geta endað í sturlun og brjálsemi sem er lífs-
hættuleg og ósegjanlega þjáningarfull. Lýsing
Kay á ástandi sínu og upplifunum I geðhæðar-
köstum eru mjög magnaðar, svo ekki sé meira
sagt. Þær eru líka trúverðugar og hvað eftir ann-
að hugsaði ég: Já svona er þetta. Einnig er þetta
mjög góð lýsing á skarpgreindri konu með mikla
faglega þekkingu sem afneitar lengi vel sjúkdómi
sínum og því að þurfa að styðjast við hækjur á
borð við lyf. Lýsing hennar á stríðinu og barátt-
unni á móti lyfinu Lithium er mjög sterk og trú-
lega þekkja margir geðhvarfasjúklingar þessar til-
finningar. Þunglyndinu lýsir hún líka á mjög trú-
verðugan hátt með þeim doða sem einkennir
það, svo og þjáningu sem veldur því að eini kost-
urinn virðist vera að svipta sig lífi. En söknuðurinn
eftir hæðunum situr Ifka eftir þegar jafnlyndið
verður blæbrigðalítið og dauft. Það er ekki heldur
tekið út með sældinni að sætta sig við það að
vera báðum megin við borðið hvað varðar geð-
sjúkdóma, ýmsa þætti verður að yfirstíga, svo sem
hverjum ætlar þú að segja frá sjúkdómnum, ætl-
ar þú yfirleitt að tala um hann opinberlega og
hvernig ætlar þú að ráðast gegn þínum eigin for-
dómum? Kay lýsir því ágætlega hvernig sjúkdóm-
urinn hefur áhrif á þá vinnufélaga sem vita af
sjúkdómnum, hvernig hann hefur áhrif á starf,
vináttu og ástarsambönd. En hún virðist vera sér-
staklega heppin með meðferðaraðila, vini, ást-
menn og vinnuumhverfi. Það er með óllkindum
hve lítið sjúkdómurinn hefur áhrif á vinnuframlag
hennar og hversu veik hún er án þess að vera
lögð inn gegn vilja sfnum. Hún útskýrir það þó á
einum stað með sveigjanlegri löggjöf Kaliforníu-
ríkis og umburðarlyndi háskólaumhverfis hennar
virðist vera meira en margur hefur reynt í hinum
akademlska heimi hérlendis.
Getur það verið að hin leiftrandi greind henn-
ar, gott félagslegt net, lyfin og síðast en ekki slst
ástin, sem hún lýsir sem miklum lækningarmætti,
hafi haft það úrslitavald að hún hefur náð tökum
á sjúkdómi sem veldur svo mörgum ævarandi
fötlun og félagslegri einangrun?
Hún segir I eftirmála að hún hefði þrátt fyrir
allt kosið að þjást af geðhvarfasýki hefði hún átt
þess kost að ráða þvl. Það er óvenjuleg en vissu-
lega áhugaverð afstaða sem skýrist þó við lestur
bókarinnnar.
Þetta er mikilvæg bók og tímabær. Hún er
mjög læsileg, fróðleg fyrir almenning og vekur
margar spurningar, sem þeir sem eiga við sjúk-
dóminn að stríða eru betur I stakk búnir að svara,
og hún er vel til þess fallin að koma á fót umræðu
um sjúkdóminn.
Guðbjörg Sveinsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur
forstöðukona i Vin, athvarfi fyrir geðfatlaða.
Augliti til
auglitis
fhugun fyrir konur
er efni bókar sem sr.
Solveig Lára Guð-
mundsdóttir hefur
skrifað og heitir
Augliti til auglitis.
Myndlistarkonan
Kristln Arngríms-
dóttir myndskreytir
bókina.
[ bókinni er að finna nítján íhuganir
fyrir konur I ýmsum aðstæðum lífsins og
fjórar Biblíulegar íhuganir. Fremst er inn-
gangur með almennri umfjöllun um
íhugun og leiðbeiningum um hvernig
hægt sé að ástunda hana
Sr. Solveig Lára segir að kveikjan að
bókinni hafi verið reynsla hennar sem
sálusorgari kvenna. Það sé reynsla henn-
ar að ekkert geti hjálpað konum jafn vel
út úr erfiðleikum og bænin og kristin
Ihugun. Síðastliðinn vetur stundaði hún
nám I kristilegri íhugun og sálgæslu I
Þýskalandi þar sem hún kynnti sér einnig
störf kyrrðarsetra.
Meðal kafla I bókinni má nefna: Ihug-
un fyrir unga konu, fyrir konu með barni,
fyrir konu sem býr við falið ofbeldi, fyrir
konu með samviskubit, fyrir konu sem
býr við vímuvandamál og fyrir konu sem
á við offitu að glíma.
Útgefandi bókarinnar er Skálholtsút-
gáfan, útgáfufélag þjóðkirkjunnar.
liiitil iiti miuiniiiiiiit
lhuginlr tiinúi konun
72 •
VER A