Vera - 01.02.2001, Blaðsíða 8
Viðtal: Svala Jónsdóttir
Hanna föt
fyrir femínista
Vegur íslenskrar fatahönnunar fer vaxandi og
stöðugt bætast nýir hönnuðir í hópinn. Á síð-
asta óri stofnuðu þrjór ungar konur fyrirtæk-
ið Pell og purpura, en þær hanna föt með nokkuð
öðrum formerkjum en margir fatahönnuðir hérlendis.
Eins og nafnið bendir til leggur fyrirtækið óherslu d
vandaðan og glæsilegan fatnað og ekki er hægt að
segja annað en að vel hafi tekist til. Vera hitti
einn eiganda Pells og purpura, Sólborgu Erlu Inga-
dóttur, að móli, skoðaði falleg föt og spurði hana út
í tilurð og stefnu fyrirtækisins.
„Þetta byrjaði allt á veitingahúsinu Við Tjörnina fyrir
tveimur árum," segir Sólborg Erla, en hún var þá ný-
útskrifuð úr hönnunarnámi. Við vorum allar með
bakgrunn í listum og hönnun, þannig að við fórum
að tala um fatahönnun og á endanum ákváðum við
að halda tískusýningu. Hana héldum við í Nýlista-
safninu á Þorláksmessu 1999 og í mars 2000 stofnuð-
um við fyrirtækið.
Hinir tveir eigendur Pells og purpura eru Anna
Fanney Ólafsdóttir og Ingibjörg Þóra Gestsdóttir.
Ingibjörg, eða Inga eins og hún er kölluð, er lærður
fatahönnuður og Anna Fanney er textílkennari. Allar
hafa þær bakgrunn í listaheiminum því Sólborg er
menntuð myndlistarkona, Anna Fanney er með
grunn í myndlist og Inga hefur meðal annars unnið
við búningagerð.
Þessi bakgrunnur þeirra hefur sett mikinn svip á
tískusýningar fyrirtækisins, þar sem listamenn hafa
verið í stórum hlutverkum. Á fyrstu tískusýningunni
okkar voru myndlistarmenn, Ijóðskáld og tóniistar-
menn," segir Sólborg. „Okkur gekk svo vel að vinna
saman að sýningunni að við ákváðum að halda
áfram á sömu braut. Sýningin okkar í Iðnó í fyrra var
með þemað eldgos undir jökli og þá vorum við með
danssýningu víð lifandi tónlist. Við ætlum að vinna
áfram með listamönnum og við notum allskyns fyrir-
sætur f sýningum og myndatökum hjá okkur."
Hægt að sérpanta
Pell og purpuri sendir frá sér tískulínu tvisvar á ári en
auk þess geta viðskiptavinir sérpantað flíkur sem eru
hannaðar samkvæmt þeirra óskum. Þannig hönnuðu
þær stöllur kjól fyrir Andreu Gylfadóttur fyrir tón-
leikaferð Todmobile sl. vetur og þær hönnuðu einnig
fötin sem Borgardætur komu fram í fyrir jólin. Vor-
og sumarlínan byrjar að koma í mars en hún er unn-
in útfrá arabískum ævintýrum að sögn Sólborgar.
„Okkar markmið er að fara á erlendan markað,"
segir hún. „Við erum með þannig föt. Það er bara eitt
eintak af hverri flík og mikið lagt í þær, þannig að
þetta eru dýrar flíkur. Við hönnum allskyns hátísku-
fatnað sem konur geta verið í, m.a. buxur, pils, kjóla,
toppa, peysur, kápur og lfka fylgihluti eins og hand-
prjónaða trefla, húfur og fleira."
Fötin frá Pelli og purpura fást í versluninni Omni,
Laugavegi 51 og Sólborg segir að viðskiptavinirnir
séu á öllum aldri þó að stærsti hópurinn hafi hingað
til verið á aldrinum 25 - 50 ára. Fötin okkar eru fyrir
sjálfstæðar konur sem vita hvað þær vilja og þora að
vera öðruvísi. Eiginlega erum við að hanna föt fyrir
femínista," segir hún og brosir.
Sólborg tók þátt í námskeiðinu Brautargengi á
síðasta ári og segir hún það hafa hjálpað mikið til
við að koma fyrirtækinu af stað. Þetta var mjög gagn-
legt námskeið sem kenndi okkur allt um það hvernig
á að byggja upp og reka fyrirtæki. Við lærðum alveg
rosalega mikið á þessu og erum núna að byggja á því
sem við lærðum á námskeiðinu."
Á námskeiðinu voru fleiri hönnuðir og það varð
til þess að þær fóru að huga að því stofna samtök
hönnuða. Okkur langar til þess að efla fatahönnun á
íslandi og gera veg hennar sem mestan," segir Sól-
borg að lokum. „Það eru svo margir góðir fatahönn-
uðir til á íslandi og það er um að gera fyrir okkur að
standa saman."
o
8
Ingibjörg, Anna Fanney og Sólborg