Vera


Vera - 01.02.2001, Qupperneq 13

Vera - 01.02.2001, Qupperneq 13
Þær vildu ekki lengur sitja heima og lesa heldur safna liði og berjast! Anna: Ég held einmitt að forsíðan þrælvirki - forsíðan sjálf er ádeila á útlit kvenna. Helga: Ég hef heyrt að sumir hafi hætt við að gefa bókina í jólagjöf út af forsíðunni. Sem er auðvitað fáránlegt því allar stelpur frá 12 ára aldri ættu að lesa bókina. Þar er nefnilega fjallað um mörg mál sem koma fyrst fram við kynþroskaald- ur, t.d. er bent á að þó maður sé orðin kynþroska þá er maður ekki almenningseign. Strákar hafa ekki rétt á að káfa á stelpum þó þær séu orðnar kynþroska. Ég man eftir þvf þegar ég var unglingur og lenti f þvf að einhver karl káfaði á mér í strætó. Ég þorði ekki að gera neitt þvf ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Enginn hafði varað mig við svona körlum. Anna: Eða þessir karlar sem eru að klípa mann í rassinn. Ætli þeir haldi að konum finnist það gott? í Píkutorfunni er m.a. fjallað um kynfræðslu í skólum. Hvert er álit ykkar á kynfræðslu í íslenskum skólum? Anna: f kvikmyndum eru mjög sjaldséðar leikkonur með lítil brjóst. Þær eru allar með stór brjóst, reyndar stundum of stór að mínu mati. Ég hef ekki ennþá gleymt brjóstunum á einni leikkonunni í myndinni I know what you did last summer. Myndin hefði frekar átt að heita I saw your breasts last summer and I am still seeing them. Helga: Oftast er þetta eitthvað í hausnum á stelpum. Af hverju ætti stelpa eða kona sem er óánægð með sig að verða ánægðari eftir brjóstastækkun? Er ekki eitthvað ann- að að? Anna: Ég þekki konu sem fór f brjóstastækkun eftir barn- eignir þvf hún hafði verið með brjóst áður en hún eignaðist börnin og vildi fá brjóstin sín aftur. Ef kona heldur að hún verði ánægðari eftir brjóstastækkun þá sé ég ekkert athuga- vert við það. Hennar er valið. Haldið þið að þessi ofuráhersla á líkamsdýrkun og stór brjóst eigi eftir að minnka á næstunni? Anna: Kynfræðsla í skólum er nánast engin. Það er allt of mikið lagt upp úr tæknilegum atriðum í kennslutfmum eins og umfjöllun um tíðahringinn og þess háttar. Það var alltaf mjög asnalegt andrúmsloft í skólanum þegar fjallað var um kynlíf. Það var aldrei hægt að tala um þetta af viti. Helga: Ég man eftir áhugaverðum myndbönd- um sem sýnd voru f kynfræðslutímum en um- ræðan og kennslan var mjög slöpp. Ég leitaði sjálf eftir flestum þeim upplýsingum sem ég þurfti í bókum eða hjá vinum. Hrafnhildur: Það eina sem ég man eftir er umfjöllunin um tíðahringinn og ég lærði mest um hann í kynfræðslutímum. Helga: Það er mikilvægt að vita ýmsilegt um tíðahringinn og önnur tæknileg atriði en það er náttúrulega fáránlegt að fjalla ekki um tilfinningar og önnur atriði eins og t.d. snípinn og hvað örvar konur kynferðislega. Hvernig er t.d. hægt að ætlast til að strákur fullnægi stelpu ef hann veit ekkert um snfpinn? í kynfræðslutímum var mikið lagt upp úr þvf að við lærðum hvað örvar stráka kynferðislega og hvernig á að fullnægja þeim. Það voru meira að segja margar aðferðir nefndar. Anna: Ég man eftir einni setningu úr kynfræðslutfma sem var eitthvað á þessa leið: Karlmaður finnur fyrir vellíðan þegar limurinn hreyfist inn og út um leggöngin. Það hefði nú alveg mátt bæta við: Konum finnst það líka stuð - eða eitthvað álfka. Hrafnhildur: f framhaldsskóla fór kynlíffræðslan fram f líf- fræðitímum og var sáralítil og nánast endurtekning á því sem við lærðum í grunnskóla. Þar ætti einmitt að nota tækifærið og vera með almennilega fræðslu í framhalds- skólum. Hvað finnst ykkur um þessa ofuráherslu á brjóst og brjóstastækkanir? Anna: Ég hef misst af einhverju... er þetta orðið eitthvað meira en áður? Helga: )á, kfktu á heimasíðu Versló. Þar eru ekki myndir af stelpum heldur brjóstum. Það er einmitt hætt við að fólk gleymi að það er persóna á bak við brjóstin. Ég vona að konur átti sig á að það er ekki stærð brjóstanna sem skiptir máli heldur þær sjálfar. Anna: Þetta hlýtur að ná hámarki og taka svo enda. Ég nenni ekki að taka þátt í þessu. Mér finnst ég ógeðslega sæt og er mjög hrifin af sjálfri mér. Hvað ætlið þið að gera í framtíðinni? Anna: Ég hef aldrei séð mig fyrir mér sem hálaunamann- eskju f framtíðinni því það eru engin í kringum mig hálaun- uð. Ég er Ifka raunsæ og veit t.d. að bróðir minn á eftir að fá betri laun en ég í framtíðinni. Ég er hins vegar ekki að segja að ég vilji hafa það svoleiðs - þvert á móti. Mín fram- tíðarmynd er ótrúlega óráðin. Ég veit hvað ég ætla ekki að gera, þ.e. ég ætla ekki að vinna á elliheimili né að koma ná- lægt umörinun. Ég er að vinna á dvalarheimili um þessar mundir og það er ótrúlega vanmetið starf og illa launað. Ég er spennt fyrir tölvunámi því mig langar að sýna að stelpur geti líka orðið klárar á tölvur. Annars hef ég engar áhyggjur því ég trúi á sjálfa mig. Hrafnhildur: Ég er ekki búin að ákveða hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór. Ég ætla í Háskólann eftir stúd- entspróf en ég er ekki búin að ákveða hvað ég ætla að læra. Helga: Ég ætla í læknisfræði. Reyndar var ég um tíma hætt við að fara f læknisfræði því fólk var svo mikið að tala um hvað námið væri erfitt. Núna er ég búin að ákveða að hlusta ekki frekar á þessar raddir og stefni ótrauð á læknis- fræðina. Framtfðin er mjög björt. Helga: Ég var mjög seinþroska og leið rosalega illa yfir þvf. Stundum grét ég á kvöldin af ótta við að enginn ætti eftir að vilja mig af því ég var ekki með brjóst. Þetta er auðvitað faránlegt en það sýnir kannski best hvernig ég meðtók þessa umræðu í samfélaginu og meðal jafnaldra. Ég er ekk- ert að velta þessu fyrir mér lengur enda fékk ég brjóst á endanum. Ég held hins vegar að klámvæðingin hljóti að hafa eitthvað að gera með þessa ofuráherslu á stór brjóst. „Ég hef heyrt stráka tala um hvað þeim finnist forsíðan viðbjóðsleg. Hafa strákar aldrei séð venjulegar konur? Ég held að fólk sé í einhverri afneitun." 13
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.