Vera - 01.02.2001, Side 23
Þegar við fórum svo að kynna samninginn, þó kynnum við verulega grunnkaupshækkun,
margir hækka um fimmtíuþúsund krónur fró og með 1. ógúst. Þó skoðaði fólk töiurnar,
var ónægt smóstund og svo heyrðist í efasemdarmönnum.
við orðuðum það. Þetta var ekki auðvelt starf og fyrir
kom að ég hugsaði sem svo, þetta gengur ekki upp,
við náum ekki saman. Þar stóð helst á kennsluah
slættinum en eftir nokkra umræðu komumst við að
samkomulagi um hann. Eftir 55 og 60 ára aldurinn
halda kennarar afslættinum. Breytingin er sú að ekki
er farið strax á yfirvinnutaxta en þar á móti kemur að
grunnlaunin hækka verulega. Það sem við vildum
tryggja er óþreyttur réttur kennara til að kenna 24
tíma þegar hann er 55 ára og 19 tíma þegar hann er
sextugur. Það var einnig Ijóst að samningsaðilar voru
tilbúnir til að ganga mjög langt til að halda málum
utan deilustigsins og það kom í Ijós í samningsferlinu
að við vorum að hugsa á mjög svipuðum nótum. Okk-
ur tókst að vera samstfga í opinberum yfirlýsingum
og lýstum yfir ánægju með samningaferlið og töluð-
um um það sem við vorum sammála um og ánægð
með. Þetta fór fyrir brjóstið á mörgum. Margir sögðu
fyrir jól: „Þetta tekst aldrei." Svo þegar samningar
lágu fyrir sagði fólk. „Þau hafa gefið allt. Það er engin
hækkun í þessum samningi."
Kennarinn orðinn fyrirvinna
Þegar við fórum svo að kynna samninginn, þá kynn-
um við verulega grunnkaupshækkun, margir hækka
um fimmtíuþúsund krónur frá og með 1. ágúst. Þá
skoðaði fólk tölurnar, var ánægt smástund og svo
heyrðist í efasemdarmönnum. Það hefur enginn sýnt
mér það svart á hvítu að einhver lækki í heildarlaun-
um enda eru allir að hækka verulega í grunnlaunum,
en auðvitað mismikið. Þrátt fyrir áróður andstæðinga
samningsins voru allir kynningarfundirnir góðir og
málefnalegir. Auk þess var mjög mikið hringt í mig og
mér barst mikill tölvupóstur sem ég svaraði og það
var sláandi hve margir þeirra sem höfðu samband
voru karlmenn þrátt fyrir að þeir séu ekki nema rúm-
lega tuttugu prósent félagsmanna. Þeir sem hafa ver-
ið að tjá sig f fjölmiðlum hafa ekkert samband haft
við mig. En ég hef líka fengið góðar og hlýjar kveðjur
frá mörgum og margir eru ánægðir með samningana
og gaman að heyra að konur telja að þær hafi ekki
setið eftir eins og 1997. Ein kona sagði við mig:
Veistu Guðrún Ebþa, ég er bara orðin að fyrirvinnu.
Að taka óhættu
„Það tekur á að standa í rifrildi og líka er erfitt að
vaka heilu næturnar. Mér fannst ögrandi og skemmti-
legt að setja sér það að vera jákvæð og brosandi og
ég sagði við þau sem voru með mér í samninganefnd-
inni: Ef þetta fer illa þá skal ég fara ein á alla kynn-
ingarfundina. Það þurfti að taka áhættu, það þurfti að
gera eitthvað fyrir grunnskólann. Niðurstaðan er
meiri kjarabætur en kennarar hafa fengið í áratugi."
o
Á horni Skólavörðustígs og Klapparstígs S: 551 4050
Tvíbreiðar dúnsængur og
sængurverasett úr
silkidamanski.
Cðir 2 x 2 og 2 x 2.20
lúrvali