Vera


Vera - 01.02.2001, Side 39

Vera - 01.02.2001, Side 39
Hvað er ferilskró? Ferilskránni þinni er ætlað að sýna þig í þfnu skærasta ljósi og markmiðið með henni er að komast f atvinnuvið- tal þar sem þú færð frekari möguleika á að láta Ijós þitt skfna. Ferilskrá er ekki viðurkennt, staðfest skjal með op- inberum stimpli og ferilskrá er ekki heldur umsókn um starf. Hverju ó ferilskróin að lýsa? Þér og hverju þú hefur afrekað. Aðalat- riðin eru menntun og starfsreynsla. Á- herslan er á afrek og viðfangsefni sem skipta mestu máli fyrir starfið sem þú ert að sækjast eftir núna. Góð ferilskrá á að geta spáð fyrir um frammistöðu þína í nýju starfi. Algengustu mistökin við gerð ferilskróa Að geta þess ekki hvaða starfi er verið að sækjast eftir. Viðkomandi er þá of upptekin við að búa til fína ferilskrá og gleymir að taka fram hverju hún / hann sækist eftir. Fyrsta skefið í að búa til ferilskró Að ákveða hvaða starfi þú vilt sækjast eftir og koma því fremst í ferilskránna í fimm til sex orðum. Ert þú ekki viss um hvar eða við hvað þú vilt vinna? Þá verður þú að eiga nokkrar ferilskrár sem hafa mismunandi störf að mark- miði. Mundu mikilvægi þess að hafa ákveðna stefnu varðandi störfin sem þú sækist eftir. I hvaða röð ú skrúin að vera - tíma eða verkefnaröð? Hefðbundin röð er tímaröð og ýmis- legt bendir til þess að atvinnurekendur vilji frekar fá skrána f þeirri röð. Aftur á móti gæti verið gott að láta fylgja með sérstakan verkefnalista ef ætlunin er að skipta um starfsvettvang.. Engin starfsreynsla ú viðkomandi sviði? Náðu þér í reynslu. Gott ráð er að finna aðila sem er reiðubúinn að hafa þig með í verkefnum jafnvel þó um sjálfboðavinnu sé að ræða. Nokkrir dagar eru betri reynsla en engin og því lengri tími og fjölbreyttari verkefni því betra - auðvitað. Hvað með eyðu í ferlinum? Ekki Ifta á eyðuna sem eyðu. Nefndu það sem þú varst að fást við á þessum tíma. Þú getur hafa öðlast verðmæta reynslu þó þú hafir ekki verið í laun- aðri vinnu. Dæmi: 1993 -1995 í fullu starfi sem foreldri (fjölskyldustjórnun) 1995 - 1996 ferðlög vegna atvinnu maka og skólagöngu barna. Hér reynir á hugmyndaflugið (og minnið). Starfsferill sem einkennist af mörgum störfum ú stuttum tíma Til að forðast þá tilfinningu að þú „tollir" hvergi í vinnu má spyrða saman álíka störf hjá nokkrum fyrirtækjum á eftirfarandi hátt 1995 - 1997 þjónustu- og afgreiðslustörf í verslunum. 1997 - 1999 skrifstofu- og ritarastörf f þjón- ustu- og framleiðslufyrirtækjum. Þú getur einig sleppt þeim störfum sem þú telur litlu eða engu máli skipta fyrir það starf sem þú sækist eftir núna. Gúð leið til að ganga í augun ú atvinnurekanda Settu í ferilskránna eins mikið af VAL lýsingum og þú mögulega getur. VAL stendur fyrir VANDAMÁL / AÐGERÐIR / LAUSNIR. Þá lýsir þú fyrst vandamál- inu sem var fyrir hendi, síðan hvað þú gerðir til að leysa það og að lokum þeim ávinningi sem lausnin hafði í för með sér. Notaðu lykilorð og orðasam- bönd eins og „tók frumkvæðið", „hef leiðtogahæfileika", „sætti aðila" „kom með lausn" o. s.frv. Er hægt að komast hjú mismunun vegna aldurs? Á íslandi er það erfitt vegna kennitölu- notkunar (eða ofnotkunar). Aldur um- sækjanda liggur yfirleitt ljóst fyrir þeg- ar kemur að því að velja umsækjendur í viðtöl. Það má þá grípa til þess ráðs að hafa í ferilskránni aðeins siðustu tfu til fimmtán ár af starfsferlinum og sleppa kennitölunni. Einnig má hafa skrána í verkefnaröð í stað tímaraðar. Hversu langt aftur í tímann ú að rekja ferilinn? Nógu langt en ekki of langt. Yfirleitt duga tíu til fimmtán ár nema að fyrir þann tfma hafir þú öðlast reynslu sem skiptir máli fyrir starfið sem þú sækist eftir núna. Sumarstörf og vinna með númi Nota má orðasambönd eins og „sumar 1998" eða „með námi veturinn 1999" o.s.frv. Betra er að skrá þessi störf á þennan hátt heldur en að láta líta svo út sem þetta væru störf unnin í skamman tíma af einhverjum öðrum ástæðum. Atvinnurekendur gætu líka litið það jákvæðum augum að nem- endur hafi unnið launaða vinnu sam- hliða náminu. Aðeins einn vinnuveitandi ú sl. úratugum Þá er gott að ná fram línulegri mynd sem lýsir framþróun þinni innan fyrir- tækisins og einnig að nefna öll verk- efni og starfsheiti sem þú hefur borið. Ef þú hefur byrjað sem ræstitæknir og ert núna verkstjóri þá er um að gera að lýsa ferlinu þarna á milli. Ahugamúl og tómstundaiðkun Áhugamál og tómstunda- iðkun eru yfirleitt ekki tí- unduð í ferilskrá nema það skipti máli varðandi það starf sem sóst er eft- ir. Ef sótt er um starf í gróðrarstöð er gott að nefna að þú hafir „græna fingur" og eigir 200 fm. verðlaunagarð en aftur á móti skiptir það litlu máli hvort þú hafir yndi af leiklist. Þetta er samt alltaf matsatriði og má þar nefna að ef þú veist að forstjórinn er „hlaupari" og þú ert það einnig þá nefndu það svo lítið beri á. Útlit ó ferilskró Mörgum atvinnurekendum er meinilla við flottan og dýran pappír og telja að um yfirborðsmennsku sé að ræða svo notið því látlausan hvítan eða bein- hvítan pappír. Gæði pappírsins geta farið eftir stöðu þess starfs sem þið sækist eftir. Notið aldrei litaðan pappfr því ef skráin er Ijósrituð þá verður af- ritið óskýrt. Hvað með tölvupóst? Ef ferilskrá er send með tölvupósti biðjum við viðtakanda að staðfesta móttöku og að skjalið hafi verið læsi- legt. Notið einfalda og algenga stafa- gerð (Times New Roman klikkar ekki) svo meðhöndlun skráarinnar sé sem auðveldust fyrir viðtakanda. Er ferilskráin þín vænleg til árangurs?

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.