Vera - 01.02.2001, Qupperneq 55
t
V
Barbara
Morgenstern
Fjorden
Fyrir nokkrum árum áskotnaðist mér
diskurinn vermona et 6-1 með þýsku
stelpunni Barböni Morgenstern Hann
var afar vinsæll í mínum geislaspilara
svo að þegar ég heyrði hjá Jóa í 12 Tón-
um að nú væri kominn nýr Barböru
Morgenstern diskur varð ég öðru frem-
ur ofsakát. Þetta er blanda af sungnum
lögum og ósungnum en þau eiga öll
sameiginlegt að hafa eitthvað afskap-
lega skemmtilegt og skrítið skemmtara-
orgel í aðalhlutverki ásamt röddinni.
Útsetningarnar á þessari plötu eru
aðeins flóknari en á þeirri fyrri sem var
nánast bara skemmtari inni í stofu og
Barbara að syngja með. Hér er hún orð-
in metnaðarfyllri og leyfir lögunum að
fá meira kjöt á beinin. Hún nýtir sér líka
„sampl"-tæknina aðeins betur og hér og
þar má heyra alls kyns brök og bresti og
flugu að suða og vatn að leka og alls
kyns skreytingar úr ólíkum áttum.
Fyrir utan þetta heldur betur
áhugaverða umhverfi laganna er stúlk-
an með prýðilegar lagasmíðar og
skemmtilega einfaldar sönglínur og
svo fylgir disknum textabæklingur. Því
er alveg gráupplagt að æfa sig á skóla-
þýskunni og syngja með Barböru og
leyfa henni að heilla sig upp úr skón-
um með óvæntum trommuheilum og
ðevintýraskemmturum þess á milli. í
einu laginu er eins og hún sé búin að
kreista úr appelsínu yfir allt lagið og
það sé þessvegna klístrað og það braki
í því. f öðru lagi er millikafli þar sem
trommurnar minna mest á langferða-
bíl með gangtruflanir og eflaust, ef vel
er leitað, er ýmislegt annað bitastætt
sem ímyndunaraflið fæðir af sér f
tengslum við sum skemmtilegu hljóð-
in hennar Barböru.
Blonde Redhead
Melody of
Certain
Damaged
Lemons
Blonde Redhead er hljómsveit frá New
York sem inniheldur japanska söng-
konu og ftalska tvibura og hefur verið
að sýsla við tónlist sfðan 1993. Nýjasti
diskur þeirra: Melody of Certain
Damaged Lemons, er hreinasti gull-
moli, rétt tæpar 40 mfnútur að lengd
en afar grfpandi og vel samin lög og
laglínur. Hljómsveitin skartar þeirri ffn-
ustu blöndu af góðum söngvara og
góðri söngkonu sem ég hef heyrt í
lengi og tekst þeim oftast að skapa
mjög heillandi stemningu. Þetta er
fremur angurvært rokk/popp en mikið
lagt upp úr dramatískum útsetningum
með mikilli strengja- og píanónotkun
sem setur sinn svip á diskinn. Samt er
undirtónninn Ifka búinn til úr reiðileg-
um gítarleik sem setur mikla spennu í
angurværðina. f ofanálag eru svo gítar-
línurnar seiðandi og allt að þvf dáleið-
andi og virðast vera samdar nær ein-
göngu til þess að galdra hlustandann
með sér aðeins lengra inn í skógivaxna
blöndu af reiðilegri rómantík og
væmnum hráleika. Lögin sem söngv-
arinn syngur bera með sér vott af
Elliot Smith áhrifum en á köflum
minnir hann líka á söngvara Sonic
Youth, Thurston Moore. Söngkonan
hefur mikla sérstöðu í söngstíl, hljóm-
ar oft eins og hún sé örlítið hrædd í
röddinni en á mjög jákvæðan hátt!
Söngvarinn og gítarleikarinn með seið-
andi galdragftarlínurnar hafa eflaust
svona áhrif á hana, hún er bara eitt-
hvað skelkuð við drungalegt andrúms-
loft tónlistarinnar. Vel þess virði að at-
huga hvað þessir alþjóðlegu tónlistar-
menn bjóða upp á í framtíðinni.
Goldfrapp
Felt
Mountain
Söngkonan Alison Goldfrapp, sem
frægust er fyrir að hafa sungið með
Trichy, Peter Gabriel og Orbital, hefur
nú gefið út sína fyrstu sólóplötu og
hvílík plata það! Hún er sett upp eins
og kvikmyndatónlist en auðvitað er
myndin ekki til. Stemningin er dular-
full, oft upplifir maður spennutilfinn-
ingu í maganum eins og f einhverju
sturtuatriði í spennumynd og það er
eins og eitthvað yfirnáttúrulegt sé að
fela sig undir sjálfri tónlistinni og ætli
sér að stökkva upp þegar maður er
ekki tilbúinn og klófesta mann. Radd-
beiting hennar spannar miklar víddir
og í sumum lögum er eitthvað mjög
svo „gamaldags" við sönginn, eins og
um Shirley Bassey eða jafnvel Billie
Holliday sé að ræða, en í öðrum lög-
um minnir stemningin meira á söng-
konurnar úr Massive Attach eða
Cochteau Ttvins. Það er alveg mögnuð
stemning á disknum og oft næstum yf-
irþyrmandi á einhvern hátt. Þetta er
sama tilfinning og að standa við fjalls-
rætur risafjalls og upplifa smæð sína
og eilífðina á mjög greinilegan hátt.
Það er eitthvað afskaplega gott í gangi
þarna, næstum heilandi. Þessi diskur
passar best við kertaljós.