Neisti - 12.06.1978, Page 2
2
. Mánudagurinn 12. júní 1978
NEISTI
6 þingmenn í
stað 5
Allt frá því núgildandi kjördæmaskipun var
tekin upp átti Alþýðuflokkurinn uppbótarþingsæti
í Norðurlandskjördæmi vestrá. í kosningunum
1971 fékk flokkurinn 566 atkvæði og uppbótar-
mann. í kosningunum 1974 tapaði Alþýðuflokk-
urinn nokkru fylgi og náði ekki uppbótarmanni.
Við það fækkaði þingmönnum kjördæmisins úr 6 í
5. Önnur breyting vað ekki á skipun þingsæta.
í þeim kosningum, sem nú standa fyrir dyrum er
staðan alveg eins. Hinir 5 kjördæmakjörnu þing-
menn hafa allir nægilegt fylgi að baki til að vera
öruggir með endurkjör, jafnvel þótt ein-
hverjar fylgisbreytingar verði.'Hinu er hins vegar
ósvarað hvort Alþýðuflokkurinn endurheimtir
uppbótarþingsæti sitt. Hvort þingmenn kjördæm-
isins verði aftur 6. Þeirri spurningu svara kjósendur
í kosningunum.
Alþýðuflokkurinn er nú í mikilli sókn. Á því
leikur enginn vafi að hann fær í sinn hlut a.m.k. 4
uppbótarþingsæti, eins og hann hefur nú. Af þess-
um 4 þingsætum verður 2 útdeilt á hlutfalli at-
kvæða. Annað þeirra getur auðveldlega fallið til
Norðurlandskjördæmis vestra. í þeim þrem
byggðarlögum hér í kjördæminu, sem Alþýðu-
flokkurinn bauð fram við sveitarstjórnarkosning-
arnar, fékk hann samtals 482 atkvæði. Fái Al-
þýðuflokkurinn u.þ.b. 100 atkvæði annars staðar í
kjördæminu má uppbótasæti heita tryggt. Hér
getur niðurstaðan leikið á örfáum atkvæðum.
Enginn þarf að fara í grafgötur með mikilvægi
þess fyrir hagsmuni kjördæmisins að efla stöðu
sína á Alþingi. Mörg þýðingarmikil verkefni bíða
þeirra þingmanna, sem fara munu á þing fyrir
Norðurlandskjördæmi vestra. Þar má m.a. nefna
atvinnumál og samgöngumál. Þar mun verkið
veitast því.léttara sem fleiri eru til að vinna það. Þá
er það einnig augljós hagur kjördæmisins að eiga
a.m.k. einn fulltrúa í öllum þingflokkum. Miðað
við velgengni Alþýðuflokksins um þessar mundir
hafa líkur mjög aukist á að hann sitji í næstu ríkis-
stjórn. Þá verður það enn mikilvægara fyrir kjör-
dæmið að eiga fulltrúa í þingflokki hans.
Ástæða er til að vara menn við að halda að
uppbótarsæti Alþýðuflokksins sé tryggt, þótt byr-
lega blási. Flokkurinn þarf enn að vinna nokkuð á
til að marki sé náð. Þótt samtök Frjálslyndra og
vinstri manna eigi enga möguleika á að fá þing-
mann, hvorki hér né annars staðar, kann vel að
vera, að einhverjir kjósendur vilji ónýta atkvæði
sín með því að kjós þau. í þessum átökum mun
hvert og eitt einasta atkvæði skipta máli. Þar má
enga áhættu taka.
Skemmtileg frétt
Fjórir krakkar efndu tii
hlutaveltu heima hjá ser og
gáfu Kvenfélagi Sjúkra-
húss Siglufjarðar ágóðan,
sem var 5.400 kr.
Krakkarnir heita:
Valgerður Steingrímsdóttir,
Hanna Hrefna Gunnars-
dóttir,
Guðjón Þór Erlendsson og
Þorsteinn Bjarnason.
Félagið sendir þeim
beztu þakkir fyrir dugnað-
inn og hugulsemina.
Jón Karlsson, 3. maður á A-listanum í Norðurlandskjördæmi vestra
Við berjumst fyrir því
að fá mann á þing!
„Þrátt fyrir verulega aukn-
ingu á fylgi Alþýöuflokksins hér
i kjördæminu i siöustu sveitar-
stjórnarkosningum varö hún
ekki á þann mælikvaröa sem
aukning flokksins varö yfir
landiö iheild”, sagöi Jón Karls-
son, 3. maöur á lista Alþýöu-
flokksins i Noröurlandskjör-
dæmi vestra i viötalw
En hvernig horfa komandi
Alþingiskosningar viö ykkur?
Viö erum mjög bjartsýnir.
Þaö er ekki nokkur vafi á þvi aö
flokkurinn hefur byr hér i kjör-
dæminu, likt og ráunin er á um
landiö i heild. Viö erum þvi
bjartsýnir á komandi alþingis-
kosningar og stefnum aö þvi aö
koma manni inn á þing.
Flokkurinn haföi ekki mann á
þingi úr Noröurlandskjördæmi
vestra siöasta kjörtimabil?
Nei, viö höföum mann á þingi
allt frá árinu 1959, en hann féll i
kosningunum 1974. Ég tel ekki
ástæöu til annars en ætla að nú
snúum við þessu viö á nýjan
leik. Ég marka þaö af þeim und-
irtektum sem viö fáum hjá fólki
hér i kjördæminu.
Er mikiö af nýju fólki á kjör-
skrá I Noröurlandskjördæmi
vestra?
Já fjölgun hefur orðiö ör hér
undanfarin ár, hér á Sauðár-
króki um 4-5% sem er töluvert
fyrir ofan landsmeöaltal. Viö
beinum þvi kröftum okkar ef tii
vill fyrstog fremst aö unga fólk-
inu. Viö erum meö ungan og
efnilegan mann hér i fyrsta sæti
og teljum að hann höfði meira
til yngra fólksins en þeir gömlu
og margnotuöu stjórnmála-
menn sem hinir flokkarnir
bjóöa hér fram.
A hvaöa mál leggja kratar i
Noröurlandskjördæmi vestra nú
mesta áherzlu i baráttunni fyrir
alþingiskosningarnar?
Fyrst og fremst eru þaö
náttúrlega kjaramálin. Eins og
rikisstjórnin hefur komiö þar
fram tel ég auösætt aö fólkiö i
landinu muni sjá til þess aö þaö
gleymist þeim seint. Þeir munu
biöa stóra hnekki i þessum
kosningum. Viö bendum náttúr-
lega á þá óstjórn og efnahags-
legt öngþveiti sem veriö hefur
landlægt hér á þessu kjörtima-
bili. Fjárfestingarvitleysa hefur
vaöiö uppi og spilling alls konar
blómgazt þar i kring.
Hverjar telur þú ástæöur fyrir
fylgisaukningu Alþýöuflokksins
i undangengnum sveitarstjórn-
arkosningum?
Eg þakka þessa fylgisaukn-
ingu nýjum baráttuaðferðum
flokksins. Ennfremur höfum viö
nú mörgum nýjum mönnum á
aö skipa, mönnum sem fólk
treystir og er hrætt viö aö ljá
atkvæöi sin. Þá má ekki gleyma
þvi aö allt flokksstarf Alþýöu-
flokksins hefur veriö endur-
skoöaö og endurmótaö innanfrá.
Flokkurinn er nú meira aölaö-
andi en áöur. Viö höfum opnaö
flokkinn og höfum ekkert aö
fela.
Nú, dæmalaust lánleysi
þeirra flokka, sem nú fara með
völd, fálm þeirra og fum hlýtur
aö leiöa hugi fólks að jafnaöar-
stefnunni.
Hvernig hefur starfiö I flokkn-
um gengiö fyrir þessar kosn-
ingar?
Nú, meö miklum ágætum viö
ég segja. Flokksfólkiö hefur
sýnt einstakan dugnaö og veriö
ósérhlifiö .1 sveitarstjórnarkosn-
ingunum var mikil vinna innt at
hendi af hálfu flokksfólks hér i
kjördæminu og mér sýnist þaö
ekki ætla aö verða neitt minna
fyrir alþingiskosningarnar,
nema siöur sé. .. .
Hvaöa þættir eru þaö helzt i
ykkar málflutningi sem snerta j
Noröurlandskjördæmi vestra
sérstaklega?
Já hvaö kjördæmamálin
varöar þá eru þar efst á blaöi
atvinnumál og samgöngumál.
Þetta eru þeir punktar sem hug-
i'r manna snúast kannski hvaö
mest um i innanhéraöspólitik-
inni. Viö Alþýöuflokksmenn
teljum aö vinna þurfi betur aö
tengingu þéttbýlissvæöanna i
kjördæminu. Máiþvi sambandi
nefna tengiveg milli Blönduóss
og Sauöárkróks, sem viö álitum
aökaJlandi aö veröi lagður sem
fyrst.
Einhver orö aö lokum?
Já ég vil gjarnan nota tæki-
færiö og þakka flokksfólki þá
vinnu sem þaö lagöi á sig i sveit-
arstjórnarkosningunum og
skora á þaö aö halda merkinu
einnig hátt á lofti i þeim átökum
sem framundan eru.
A allt launafólk skora ég aö
skoöa hug sinn vel. Þaö hefur nú
möguleika á aö gera Alþýöu-
flokkinn aö sterkum og öflugum
launþegaflokki.
Auglýsing um fyrirfram-
greiðslu þinggjalda í
Siglufjarðarkaupstað 1978
Skattgreióendur eru hér með minntir á, að 5.
og síðasti gjalddagi fyrirframgreiðslu þing-
gjalda 1978 var hinn 1. júní s.l. Bar þá öllum
gjaldendum að hafa lokið greiðslu upp í þing-
gjöld 1978, er samsvarar 70% þinggjaida vió-
komanda s.l. ár, sbr. nánar áður útsenda
gjaldseðla.
Sé skattgreiösla ekki innt af hendi innan
mánaðar frá gjalddaga,- ber að greiða 3%
dráttarvexti fyrir hvern mánuð eða brot úr
mánuði, sem greiðsla dregst. Vangreiðsla að
hluta veldur því, aö þinggjöld gjaldandans 1978
falla í eindaga 15, n.m. éftir.'að álag'ningu er
lokið. ■’ '' .
Bæjarfógetinn á Siglufiröi, 3. júní 1978.
Elías I. Elíasson.
Siglfirðingar
Athugið að bannað er að setja rusl af lóðum í
ruslatunnur, s.s. steina.spýturog því um iíkt.
Siglufirði, 25.4. 78
Bæjarstjórinn
Alþýðu-
flokkur
Frarnhald af l. síðu
var óvenju stór. Það er ekki að
efa að í sumum tilvikum a.m.k.
urðu sveitarstjórnarmenn
stjórnarflokkanna að líða
ómaklega fyrir hinar miklu ó-
vinsældir ríkisstjórnarinnar.
5 þingmenn eða 6
Þrátt fyrir tap stjórnarflokk-
anna, gefa úrslitin hér í kjör-
dæminu ekki tilefni til að vænta
róttækra breytinga á skipun
þingsæta kjördæmisins, sé mál-
ið skoðað af raunsæi. Öruggt
má telja að báðir stjórnarflokk-
amir tapi enn nokkru fylgi, en
ólíklegt er að það verði svo
mikið að þingsæti þeirra verði í
nokkurri hættu. Til þess er af of
miklu að taka. Enginn vafi er á
að Alþýðubandalagið heldur
sínu þingsæti. Þessar kosningar
munu snúast um það eitt hvort
Alþýðuflokkurinn endurheimti
nægilegt fylgi til þess að fá aftur
uppbótarmann þann sem tap-
aðist til Vestfjarða í síðustu
kosningum. Þar með mundi
þingmönnum kjördæmisins
fjölga aftur í 6. Munu margir
líta svo á að kjördæminu veiti
ekki af því að hafa sem öflug-
astan hóp á þingi til að gæta
hagsmunamála sinna. Þá er
ekki verra að kjördæmið hafi
sinn fulltrúa í þingflokki Al-
þýðuflokksins, ekki síst ef Al-
þýðuflokkurinn á eftir að taka
þátt í stjómarmyndun eftir
kosningar eins og vel gæti orð-
íð.