Neisti - 21.06.1978, Side 1

Neisti - 21.06.1978, Side 1
6 ÞINGMENN ÍSTAÐ 5 í NORÐURLANDSKJÖRDÆMI VESTRA Allt frá því að núgild- andi kjördæmaskipun var tekln upp átti Al- þýðuflokkurinn uppbót- arþingsæti í Norður- landskjördæmi vestra. f kosningumim 1971 fékk flokkurinn 566 atkvæði og uppbótarmann. f kosningunum 1974 táp- aði Alþýðuflokkurinn nokkru fylgl og náði ekkl uppbótarþingmanni. Vlð það fækkaði þingmönn- um kjördæmisins úr 6 í 5. önnur breyting varð ekki á skipun þingsæta. í þeim kosningum, sem nú standa fyrir dyr- um er staðan alveg eins. Hinir 5 kjördæmakjörnu þfngmenn hafa allir nægilegt fylgi að baki til að vera öruggir með éndurkjör, jafnvel f>ótt einhverjar fylgisbreyt- ingar verðl. Hinu er hins- vegar ósvarað hvort Al- þýðuflokkurinn endur- heimti uppbótarþing- sæti sitt. Hvort þingmenn kjördæmisins verði aftur 6. Kjósum Finn Torfa lands- kjörinn sjötta þingmann kjördæmisins Alþýðflokurinn er nú í mikilli sókn. A því leikur enginn vafi að hann fær í sinn hlut a.m.k. 4 upp- bótarþingsæti yfir land- ið, eins og hann hefur nú. Af þessum 4 uppbótar- þingsætum verður 2 út- deilt á hlutfall atkvæða. Annað þeirra getur auð- veldlega fallið til Norður- landskjördæmis vestra. í þeim þrem byggðarlög- um hér í kjördæminu, sem Alþýðuflokkurinn bauð fram við sveitar- stjórnarkosningarnar fékk hann samtals 482 atkvæði. Fái Alþýðu- flokkurinn u.þ.b. 100 at- kvæði anpars staðar í kjördæminu má uppbót- arþingsæti heita mjög líklegt. Fái flokkurinn enn meira fylgi má upp- bótarþingsæti heita tryggt. Hér getur niður- staðan leikið á örfáum atkvæðum, ef til vill tfu, ef-til víll fimm, ef til vill aðeins. einu atkvæði, ÞÍNU ATKýÆÐI.

x

Neisti

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.