Vera - 01.10.2003, Side 13
/ SKYNDIMYND
kemur líka frá þessum skóla, Brenda Blethyn," segir Sig-
ríður kokhraust.
Sigrfður útskrifaðist úr svokölluðu Post Graduate
námi árið 2000 og eftir hálft ár í London bauðst henni
að fara norður til Akureyrar að leika í „Ball í Gúttó" (e.
Midnight Sun) eftir Maju Árdal, sem Sigríður segir vera
mikinn femínista. „Konur eru svo sterkar í þessu leikriti,
við vorum voðalega ánægðar með okkur," segir hún
um þetta verk. Maja Árdal átti eftir að hafa mikil áhrif á
hana og í gegnum hana kynntist hún syni Maju og nú-
verandi eiginmanni sínum, leikaranum Paul.
hún sig á því að eineltið er alls staðar eins. Það sé alltaf
ein tekin fyrir og alltaf sé ein foringinn. „Okkur finnst
hún kannski ekki foringinn, heldur er hún bara fyndin
og skemmtileg og yfirleitt sæt, eitthvað sem við viljum
allar vera. En oftar en ekki líður henni sjálfri illa og níðist
þvi á öðrum." Sigríður rifjar það líka upp að hún hafi
verið í sömu sporum og Fjóla: „Ég man eftir að hafa
horft á einelti og í stað þess að gera eitthvað fór ég að
hlæja í einhverju stressi. Það er ekkert kúl að fara allt í
einu að standa með fíflinu."
Sigríður segir að strákar lyfti frekar hnefanum og kýli
„ÉG MAN EFTIR AÐ HAFA HORFT Á EINELTI 0G í STAO ÞESS AÐ GERA EITTHVAÐ
FÓR ÉG AÐ HLÆJA í EINHVERJU STRESSI. ÞAÐ ER EKKERT KÚL AÐ FARA ALLT í
EINU AÐ STANDA MEÐ FÍFLINU."
I mars 2002 flytur Sigríður til Kanada og var í læri hjá
Maju. Hún elti hana um allt og lærði af henni. Maja
kennir í Háskólanum í Toronto, leikstýrir, skrifar leikrit
og er formaður stjórnar leikfélags sem sýnir einungis
leikrit eftir konur eða um konur. Maja dró Sigríði á leik-
rit sem henni fannst að hún ætti að þýða og þar kynnt-
ist Sigríður m.a. leikritinu Fjóla á ströndinni. „Leikritið
hafði svo mikil áhrif á mig að ég fór að grátafyrst þegar
ég sá það," segir Sigríður. Höfundurinn var á sömu um-
boðskrifstofu og Maja svo Sigríður var komin með
samninginn í hendurnar eftir viku. Það var því ekki aftur
snúið. „Ég kláraði þýðinguna á fjórum mánuðum og
hafði Paul mér til aðstoðar," segir Sigríður. Þrátt fyrir að
hún hafi ekki fengið styrki til að setja upp sýninguna lét
hún það ekki setja strik í sinn reikning. „Ég leitaði til
fólks sem ég þekkti og var tilbúið að hjálpa og taka
áhættuna með mér. Ef þig langar nógu mikið, þá bara
setur þú þig á hausinn!" segir Sigríður og hlær með
sjálfri sér.
Leikritið sem Sigríður trúði svo á fjallar um einelti.
Fjóla er 16 ára, hún er pirruð á mömmu sinni en hefur
lítið samband við pabba sinn. Hún stjórnast af bestu
vinkonu sinni sem leggur Soffíu, bekkjarfélaga þeirra, í
einelti. Fjóla er áhorfandi að eineltinu og hefur mikið á
samviskunni. í gegnum verkið er minnst á eineltismál
sem kom uþþ i Kanada árið 1997, þar sem stelpa var
myrt af jafnöldrum sínum. Þær lömdu hana og drekktu
henni að lokum. Málið vakti mikla athygli fyrir það að
morðingjar hennar voru ósköp eðlilegar stelpur sem
litu alls ekki út fyrir að vera færar um slíkt voðaverk.
Fjóla sér fréttir af þessu máli í sjónvarpinu og í fljótu
bragði finnst henni þetta mál ekki koma sér við. Smám
saman áttar hún sig þó á því að þær eru alls ekki svo
ólíkar henni og að kannski eigi hún mikið sameiginlegt
með þeim.
„Ég held að þetta leikrit hafi mest áhrif á stelpur á
okkar aldri," segir Sigríður og á við okkur sem erum á
miðjum þrítugsaldrinum. Hún heldur áfram að útskýra
mál sitt: „Maður er búinn að fara í gegnum einhverja
sjálfskoðun, er að endurskoða vinina og líta til baka."
Sigríður segist alltaf hafa haldið að hún og hennar vin-
konur hafi verið verstar en þegar hún sá leikritið áttaði
hvern annan en stelpu-eineltið sé meira falið, það sé
gallinn. Sigríður vitnar í eitt áhrifamikið atriði úr leikrit-
inu sem gerist í skólabíl: „Nokkrar stelpur sparka í kálf-
ana á Soffíu undir sætinu og við hliðina hvísla aðrar
niðrandi orðum að henni. Þetta gerist á meðan strák-
arnir slást aftur í. Þeim er sagt að halda kjafti en aldrei er
neitt sagt við stelpurnar. Þær klína í hárið á henni, berja
hana en bara svo að engir sjái," segir Sigríður og bætir
við að erfiðara sé fyrir þolandann að klaga ef engir sjá
eineltið.
En af hverju er stelpu-einelti öðruvísi? Sigríður veltir
vöngum yfir þessarri spurningu og segir að það gæti
verið vegna þess að þær stjórnist meira af tilfinningum,
„án þess þó að segja að konur séu frá Venus og karlar
frá Mars," bætir hún við. „Það þarf ekki að berja stelpur
til að þeim líði illa heldur er auðveldara að særa þær
með orðum. Stelpur taka meira inn á sig og fara í fýlu.
Kannski er það af því að umhverfið er alltaf að segja
þeim hvernig þær eigi að vera og líta út. Jafnvel í hvaða
fötum þær eigi að vera. Ef þær fara ekki eftir þeim kröf-
um er þeim strítt. Svo eru þær að fá brjóst og v.ta ekkert
hvernig þær eiga að haga sér. Manni gat kannski verið
strítt á því að vera í fötum sem manni fannst sjálfri flott
en svo var farið í skólann og þá var sett út á þau. Ég fór
þá aldrei í þá þeysu aftur," rifjar Sigríður upp og trúlegt
er að margar geti samsamað sig með þessarri reynslu.
Fjóla á ströndinni er án efa leikrit með boðskap, en
er það svoleiðis sem leikhús á að vera? Sigríður er fljót
til svars: „Tilgangurinn með leikhúsi er búinn að missa
sig ef leikritið hefur ekki boðskap. Ekki það að leikhúsið
eigi að vera predikun, það er gaman að fara á einhverja
afþreyingu líka, en maður verður alltaf að læra eitthvað
af því að fara í leikhús. Leikhúsið á að þjóna samfélag-
inu og það er dáið ef það gerir það ekki. Mig langar til
þess að halda áfram að gera svona hluti og vonandi fæ
ég tækifæri til þess í framtíðinni," segir Sigríður að lok-
um og eftir að hafa verið Fjóla á ströndinni í haust, bæði
norður á Akureyri og í Reykjavík, er hún flogin á vit æv-
intýranna til Toronto við strendur Ontario-vatns. Það
stendur þó til að sýna Fjólu á ströndinni í skólum og
stofnunum næsta haust. Þangað til verður Sigga á sinni
eigin strönd. X
Kærleikskúlan 2003 er skreytt
mynd eftir Erró, hún er jafnframt
fyrsta kærleikskúlan.
Markmiðið með sölu kúlunnar
er að auðga líf fatlaðra barna
og ungmenna.
Sölutímabil:
10.-24. desember.
Sölustaðir:
Home Art - Smáralind
Kokka - Laugavegi 47
Villeroy og Boch búðin - Kringlunni
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
vera/5-6. tbl./ 2003 / 13