Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.09.1953, Side 3

Ljósmæðrablaðið - 01.09.1953, Side 3
Ljósmæðrabl. V, 1953 Samvaxnir tvíburar. Eftir Rigmor Ingmann, yfirljósmóður við fæðingardeild B, Ríkisspítalanum, Kbh. Hinn 30. marz þ. á fæddust samvaxnir tvíburar á B- deild fæðingarstofnunarinnar í Kaupmannahöfn. Þ. 7. maí kom slík fæðing fyrir í annað sinni. Það var þríburafæð- ing, tveir voru samvaxnir, en sá þriðji lifði og skrifað- ist út með móðurinni eftir 16 daga. Fyrri konan var 29 ára og fæddi í þriðja sinn. í fyrra hjónabandi hafði hún eignazt tvö heilbrigð börn, 1945 og 1948. Tengdamóðir hennar var tvíburi, svo og frændi hennar og frænka. Ekki var nákvæmlega vitað um tíðir, en hún taldi sig hafa haft þær síðast 7. maí. Var því búizt við fæðingu í febrúar. Allan meðgöngutímann var hún meira og minna lasin, hafði uppköst og þrautir í kviðarholi og síðast kvef í lungnapípum og hitaslæðing. Seint í febrúar var tekin af henni Röntgenmynd eftir beiðni ljósmóðurinnar. Kom þá í ljós, að um tvíbura var að ræða, og voru báðir í höfuðstöðu. Áður hafði konan verið skoðuð á eftirlitsstöð fyrir vanfærar konur og þótti ekki ástæða til að ráðleggja henni að fæða í fæðingar- stofnun. Þann 30. marz kl. 18,30 var hún lögð inn á fæðingar- deild B. Vatn hafði farið kl. 10 um morguninn og hríðir voru góðar eftir að hún hafði fengið þrjár pítúítríninn- spýtingar. Legháls var útvíkkaður til fulls og kl. 16,15 fór að þrýsta niður og sjá í höfuðið. Læknir sá, er lagði hana inn, upplýsir, að hann hafi með rannsókn gegnum

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.