Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.09.1953, Qupperneq 5

Ljósmæðrablaðið - 01.09.1953, Qupperneq 5
LJÖSMÆÐRABLAÐIÐ 51 ara fóstrinu með því að festa í það krókatengur. Það kom tvöfalt (conduplicatio corporis). Næst er 1 ml af Methergin gefið í æð, og kemur þá fylgjan innan skamms og virðist vera heil. Ekki er nema einn naflastrengur. Til öryggis er þreifað upp í legið og finnst ekki annað en það sé heilt og dregst vel saman. Legháls og leggöng voru ósködduð. Hvergi var sjáanleg- ur neinn áverki. Spangarskurðurinn, sem örlítið hafði rifnað út úr, var nú saumaður saman með venjulegum hætti. Klukkustund síðar eni góðir samdrættir í leginu og blæðing engin. Konunni var gefið penicillin og strepto- mycin. Eftir tíu daga sængurlegu útskrifaðist konan. Hiti enginn. Ekki hafði hún nein óþægindi önnur en smávegis óþægindi við þvaglátin. Tvíburarnir vógu 2550 og 2500 g, hvorttveggja stúlkubörn. Fylgjan vóg 1450 g og mældist 28—24—3y2 cm. I naflastrengnum voru 6 æðar. Hitt tilfellið frá fæðinardeild B var, eins og áður er sagt, þríburafæðing, þar sem eitt fóstrið var heilbrigt og eðlilegt, en tvö samvaxin. Konan var 21 árs, frumbyrja, og kom á deildina 5. maí vegna eggjahvítu í þvagi, hækk- aðs blóðþrýstings og bjúgs. Hún var 170 cm á hæð, vóg 90,5 kg, ummál kviðar 113 cm og grindarmál 25 — 30 — 20,5 cm. 1 þvagi var 4,5%„ af eggjahvítu. Blóðþrýsting- ur 155/100; bjúgur í andliti, höndum og fótum. Fæðing- in var væntanleg 15. júní. 7. maí var konan flutt í fæðingarstofu, þar eð vatn var farið og hríðir byrjaðar. Kl. 8,50 var varla um nokkra útvíkkun að ræða, leghálsinn finnanlegur gegnum enda- þarminn og höfuð í grindaropi. Ráðgert var að taka Rönt- genmynd af konunni, en hætt við það, vegna hins háa og óstöðuga blóðþrýstings. Fæðingunni miðar nokkuð og hríð- ir eru sæmilegar. Kl. 13,30 er henni gefinn 1 ml af Algo- spasmini og aftur kl. 15,45. Kl. 16,30 er útvíkkun lokið. Þar sem blóðþrýstingur helzt alltaf í 200/140, er ákveðiö að taka barnið með töngum. Konan fær aether og Kjel-

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.