Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.09.1953, Qupperneq 6

Ljósmæðrablaðið - 01.09.1953, Qupperneq 6
52 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ lands töng er lögð á höfuð barnsins. Klippt er upp í spang- arbrúnina. Tiltölulega vel gengur að ná höfðinu fram, en stendur á herðunum. Er þá gerð innri rannsókn. Hrygg- ur liggur fram á við til vinstri, handleggir neðst, og eru dregnir fram. Enn er að finna tvo handleggi, annan tii vinstri, hinn til hægri, og auk þess höfuð, sem stendur hátt yfir grindaropi hægra megin. Þegar togað er í höf- uðið, sem fætt er, kemur strax í ljós, að breiður sam- vöxtur er á milli brjósts og kviðar beggja fóstranna. Með því að draga höfuð, herðar og handleggi fyrra fóstursins eins langt fram og hægt er, tekst að klippa samvöxtinn. Er nú gerð vending og framdráttur á seinna fóstrinu og gekk það greiðlega. Þá kemur í ljós, að þriðja fóstrið er eftir. Eru þá belgir sprengdir og finnst fyrirliggjandi höfuð. Er það dregið niður með hendinni og jafnframt þrýst á legið. Þannig fæðist þríburinn, merktur C, í höfuð- stöðu. Methergin, 1 ccm, er gefið í vöðva og eftir 5 mín. fæðist fylgjan. Legið er því næst athugað og finnast þar engar fylgjuleifar né annað athugavert. Ekkert hefur rifn- að út frá spangarskurðinum og blæðing er lítilfjörleg. Sjúklingnum er gefið 500 ml af Macrodex. Hún er föl, en ekki sérlega eftir sig. Blóðþrýstingur 160/115, púls 96. Tvíburarnir voru vaxnir saman frá bringubeini niður að nafla. Naflastrengur var aðeins einn og í honum f jór- ar æðar. Fóstrin voru jafnstór og yfirleitt vel þroskuð og ekki vansköpuð að öðru leyti. Bæði voru stúlkubörn og vógu samanlagt 3000 g. A var 46 cm, B 44 cm á lengd. C vóg 2150 g og var 43 cm. Það er látið í heitt bað í 7 mínútur, fær súrefni og Lobelin og fer þá að orga. Er það svo látið í hitakassa. Fylgjan vegur 1250 g. Stærð hennar er 21 — 24 — 3'/2 cm. Fjórfaldir belgir eru milli fylgju þríburans og sam- vöxnu tvíburanna. Sjúkl. er gefið morfín, penicillín og streptomycin. Næsta dag er hitinn 37,9 stig og úr því aldrei yfir 37,4 stig á

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.