Ljósmæðrablaðið - 01.04.1965, Blaðsíða 17
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
41
Þegar barnið tók upp á því að mjálma í vöggunnL
I dönskum blöðum var frá því skýrt fyrir skömmu að
i'yrir tilviljun hefði þar orðið vart við nýstárlegan sjúk-
dóm kornbarna, sem væri að kenna vanþroskun eða sködd-
un í litningum bamanna. Fyrst var frá þessum sjúkdómi
skýrt í Frakklandi árið 1963.
Það voru hjúkrunarkonur á fæðingardeild eins sjúkra-
hússins í Kaupmannahöfn sem vöktu athygli yfirlæknis-
ins á því að eitt nýfæddu barnanna gaf í sífellu frá sér
hljóð, er voru nákvæmlega eins og þegar köttur mjálmar.
Annar læknir var þar nærstaddur og hafði sá þá fyrir
nokkrum dögum einmitt verið að lesa um þetta kattar-
mjálm ungbarna í frásögn fransks læknis.
Franski læknirinn hafði heyrt samskonar mjálm úr
munni barns í sjúkrahúsinu sem hún starfaði við, þótti
mjög undarlegt og gerði leit í öðrum sjúkrahúsum í borg-
inni hvort þar fyrirfyndist nokkuð svipað. Við leitina
fundust tvö börn til viðbótar, sem bæði mjálmuðu í sífellu.
Börnin þrjú voru öll tekin til gagngerðrar rannsóknar og
kom í ljós að þau voru öll veikburða og andlega vanþroska.
I ljós kom ennfremur, að ástæðan fyrir hinu undarlega
mjálmi þeirra var hin sama hjá þeim öllum þrem, van-
þroska eða skaddaðir litningar. Við nákvæma skoðun kom
í Ijós að fimmti litningurinn var gallaður.
Það er löngu alkunna, að það eru litningarnir, sem bera
Eieð sér alla þá eiginleika sem við hljótum að erfðum og
ÖU okkar þróun, andleg og líkamleg er þeim því háð. En
Þetta er í fyrsta skipti í sögu læknavísindanna, sem hægt
er að tengja ákveðinn líkamsgalla ákveðinni litningssködd-
lln- Talið er að fimmti litningurinn beri ábyrgð á myndun
^arkans og ástæðan til þess að bamið í vöggunni á fæð-
lngadeildinni í Kaupmannahöfn mjálmaði sé sú, að fimmti
útningurinn hafi ekki getað myndað barkann eins og lög
gera ráð fyrir.