Ljósmæðrablaðið - 01.04.1965, Side 18
42
L J ÓSMÆÐR ABLAÐBD
Ástæðan til þess að franslta lækninum datt í hug að
mjálm barnanna kynni að vera um að kenna sködduðum
litningum var sú, að það var einmitt hún sem nokkrum ár-
um áður hafði veitt því athygli að litningur nr. 21 er jafn-
an skaddaður í börnum þeim sem kallast mongolidar. Síðar
hafa fundizt fleiri sjúkdómar sem hægt er að tengja
óvenjulegum háttum litninga. Þó segja læknar af sinni
venjulegu varúð að ekki sé öldungis víst að öll kornabörn
sem taki upp á því að mjálma séu með skaddaða litninga,
um það þurfi rannsókn að skera úr.
1 Danmörku hafa fundizt tvö böm önnur sem líka
mjálma eins og kettir, en þau börn eru miklu eldri, fjög-
urra ára gömul og bæði andlega vanþroska. í Englandi
hefur einnig fundizt eitt barn á sama reki sem eins er
ástatt um en annars eru börn þessi yfirleitt mjög ung,
sem næst nýfædd. Þrjú barna þessara eru í Danmörku,
eitt er enskt, eitt sænskt, fimm frönsk og þrjú annars
staðar að. Fyrirbrigði þetta hefur ekki áður vakið almenna
athygli. Það er fyrst eftir skrif dr. Lejeune um það árið
1963 sem læknar fóru að gefa því gaum. Um flest barna
þessara er það að segja að þau eru mjög heilsutæp og lifa
sjaldan lengi. Endist þeim aldur er andlegur þroski þeirra
fjögurra ára gamalla á við níu mánaða bam.
Dagleg notkun eiturefna.
Enska blaðið Sunday Express skýrir svo frá: „Á hverju
kvöldi tekur milljón manna á Bretlandi svefnpillur —
pillur sem geta verið banvænar. Nú er búið að byggja
sérstakt sjúkrahús fyrir sjúklinga, sem algjörlega eru
háðir svefnlyf jum.
Á hverju ári eru keypt deyfandi lyf fyrir um það bil tvær
milljónir punda. Heilbrigðisyfirvöldin segja — óhuggnan-
lega margir hafa dáið af þessum ástæðum og þá einkum
konur... Allt of margir sjúklingar ná í þessi lyf og