Ljósmæðrablaðið - 01.04.1965, Blaðsíða 19
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
43
gleypa þau í sig án nokkurrar skynsemi. Ekki er óalgengt
að menn liggi meðvitundarlausir 7—8 daga“.
Sumir deyja — já allt of margir. Farið heldur í heitt
bað að kvöldi þó að það taki nokkurn tíma, heldur en að
taka svefnlyf. Það er betra að vaka nokkra stund en verða
háður slíkum lyf jum.
En það er ekki aðeins til að róa taugarnar, sem menn
taka lyf. Margir neyta örvandi lyfja af ýmsu tagi, sem
geta haft mjög slæm áhrif á taugar, þótt þeirra sé ekki
neytt í fullu óhófi.
Þar má fyrst nefna koffein, sem er einnig notað til inn-
spýtingar ef hjarta sjúklinga stöðvast á skurðarborði.
0.3—0.5 gr. skammtur getur nægt til þess að hjartað
dagist saman og getur koffeinið þannig bjargað manns-
lífum, ef sjúklingurinn er ekki vanur að neyta þess í svo
ííkum mæli að líkaminn hafi byggt upp svo mikla mót-
stöðu gegn því, að lyfið verki ekki.
Koffein örvar taugar ef til vill þegar þær þurfa mestr-
ar hvíldar. Koffein deyfir þreytutilfinningu lætur vöðva
og heila vinna þótt hvíldar sé þörf og hefur slæm áhrif á
ineltinguna. Koffein er í te, kaffi og coladrykkjum. Venju-
lega er meira koffein í te en kaffi, en þar sem teið er
drukkið þynnra en kaffi verður koffeinmagnið svipað í ein-
um bolla. Koffein hefir áhrif á miðtaugakerfið, á vöðvana
— þar á meðal hjartavöðvana, og einnig nýnm. Mönnum
finnst að þeir aflýist og hressist, andlega. Seinna getur
eirðarleysi orðið áberandi. Örvun miðtaugakerfisins hefir
venjulega þunglyndi í för með sér seinna og ef um veru-
lega ofneyzlu eiturefna er að ræða, svefnleysi, æsing,
óreglulega hjartastarfsemi og öran andardrátt.
Þeim, sem vilja venja sig af óhóflegri kaffidrykkju eða
annarri neyzlu örvandi lyfja, er ráðlagt að taka B fjör-
efni, drekka mikið vatn og borða ávexti. Einnig er talið
beppilegt að fara í heitt bað á hverjum degi.
Þýtt og endursagt J. J.