Siglfirðingur - 10.01.1958, Qupperneq 1
2. tölublað.
Framboð
Sjálfstœðisflokksins
KOSNINGASKRIFSTOFA
Sjálfstæðisflokkslns
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins er í Sjálf-
stæðishúsinu, Grundargötu 11, niðri (nyrstu dyr), og
er opin daglega frá kl. 10—10. ,— Sími 292.
Sjálfstæðisfólk og annað stuðningsfólk D-listans
er hvatt til að hafa samband við skrifstofuna. Gefið
upplýsingar um kjósendur, sem verða fjarverandi á
kjördag. : , ,
Sjálfboðaliðar, sem vilja vinna fyrir D-listann, gefi
sig fram á skrifstofunni.
0 -1 i s t i n n
FRAMBQÐSLISTI Sjálfstæðis-
flokksins, sem nýlega var kunn-
gjörður, er skipaður frjálslyndu
og vinsælu fólki úr öllum starfs-
stéttum staðarins, svo sem vera
bér um framboðslista flokks allra
stétta. Þetta fólk hefur því þekk-
ingu á hagsmunum og málefnum
bæjarbúa allra og skilyrði til að
vinna að framf aramálum byggðar-
lagsins.
Efstu sætin á lista flokksins
eru hér sem annarsstaðar á land-
inu, skipuð samkvæmt úrslitum
prófkosninga, en listinn að öðru-
leyti byggður upp að vilja full-
trúaráðs og sameiginlegs al-
menns félagsfundar sjálfstæðis-
félaganna þriggja, svo sem lög
þeirra gera ráð fyrir. Var listinn
í heild endanlega afgreiddur á
sameiginlegum félagsfundi með
samhljóða atkvæðum.
Fer vel á því að þetta tvennt
einkenni listann öðru fremur, að
hann sé byggður á prófkosningu
fylgjenda flokksins og skipaður
úr öllum stéttum. Þetta tvennt
er styrkur flokksins — og er það
því að vonum, að andstæðingar
hans reyni sérstaklega að tor-
tryggja þessi atriði, en Sjálf-
stæðisflokkurinn einn byggir lista
sína upp á lýðræðislegan hátt. —
Að sjálfsögðu mun slúður and-
stæðinganna verða sér til skamm-
ar í þessu efni.
Að þessu sinni skipar greind
og vinsæl kona baráttusæti list-
ans — og skapar siglfirzkum
konum einasta tækifæri þessara
kosninga til að fá konu kjörna í
bæjarstjórn. Með hliðsjón af því,
sem samtakamáttur kvenna hefur
áorkað í þágu samborgaranna,
fyrr og síðar, má augljóst vera,
að siglfirzkrar konur geta nú
tryggt D-listanum fjóra fulltrúa
og sjálfum sér fulltrúa í bæjar-
stjórn. Til þess skortir aðeins
þann herzlumun, sem þær eiga
létt með að láta af hendi. —
Þroski kvenna í hagsmunamálum
sínum er hafinn yfir þröng
flokkssjónafmið og pólitískt of-
stæki — og hér gefst tækifæri til
að sanna að svo sé.
Sjálfstæðisfólk skilur, að nu-
verandi vinstri stjórn skipuleggur
þá hörðustu hríð að flokki þess,
sem saga hans greinir. Öll meðul
virðist helga þann gjörræðisfulla
tilgang að einangra og útiloka
þann stjórnmálaflokk, sem 42,4%
af þjóðinni gaf atkvæði sitt í
síðustu kosningum, nær helming-
ur þjóðarinnar af öllum starfs-
stéttum, og er þeim því sterkasta
sameiningartákn þjóðarinnar í
þjóðfélagslegum efnum. Svo langt
er gengið, að kosningalögum er
breytt í þeim tilgangi einum, að
torvelda starfsemi Sjálfstæðis-
flokksins — og er slíkur ósómi
„Kosningablaðið“ og „Alþýðu-
bandalagið“! Þá veit maður það.
Man þá enginn „Mjölni“ og
„Kommúnistaflokkinn“ ? Eða eru
þessi fyrirbæri í eðli sínu hin
sömu, hverju nafni sem þau nefn-
ast? Er hér verið að bjóða óselj-
anlega vöru í nýjum umbúðum
með nýju nafni ? Og eru það með-
mæli með vörunni, að nýjar um-
búðir séu forsenda þess, að hægt
sé að stilla henni út? Bisness-
menn bera margt við, hvort sem
þeir eru á grímudansleik G-list-
ans eður ei, en allt þetta brölt
býður heim grunsemdum um, að
það sem er falið, kommúnisminn,
sé lítt aðlaðandi, og er reyndar
viðurkenning á því, að flokkurinn
þurfi í felur um hverjar kosn-
ingar.
Og ekkert er broslegra en bolsé-
yikki dagsins í dag. Fyrst býður
hann hverjum sem er til banda-
lags í þeim tilgangi einum, að
draga athygli kjósenda frá sjálf-
um sér! Þegar enginn vill með
einsdæmi í íslenzkri stjórnmála-
sögu. Þetta á að koma í staðinn
fyrir efndir á öllum sviknu lof-
orðunum í hagsmunamálum fólks
ins og getuleysis og uppgjafar við
stjórnvölinn.
Aldrei hefur því flokknum riðið
meir á samheldni frjálslynds
fólks, sem standa vill vörð um
lýðræðið, og hann væntir þess,
að hver einstaklingur geri skyldu
sína í starfi fyrir þessar kosn-
ingar — og þá mun vel fara.
honum ganga, skinnar hann upp
gamlan laumukommúnista, máske
mág sinn eða frænda, og gerir
við hann hvorki meira né minna
en allsherjar alþýðubandalag. —
Það skiptir ekki máli þótt viðkom-
andi sé heildsali eður annað slíkt:
alþýðubandalag skal það heita;
upp á það hefur hann bréf. Og
máske finnst löglærður stofu-
kommi til að löggilda sáttmál-
ann! Skítt með það þótt verka-
manninn vanti, eða form. verka-
lýðsfélags sé fórnað, svona skal
það vera.
Svo er að gefa út nýtt blað
með nýju nafni; taka fram
stærsta fyrirsagnarletrið, lofa öll-
um einhverju og minnast lítils-
háttar, auðvitað í öllu hófi, á
ágæti sjálfs sín. Og ef háttvirtir
kjósendur kunna ekki að meta
allt þetta, þá er þeim sko ekki
matur bjóðandi!
En ef þú, lesari góður, skyldi
boðinn á grímudansleik G-listans,
(Framliald á 4. síðu)
Hörð keppni komma við
Eystein fóstbróður.
Islenzkan er orða frjósöm
móðir. Kemur það sér vel í
margbreytilegum tilfellum. Hugs-
ið t.d. um alla nýju Eysteinsskatt-
ana. Og um 100 milljónirnar, sem
teknar voru af fjárlögum á bið-
lista fram yfir bæjarstjórnar-
kosningar, og þá þarf að inn-
heimta í nafni nýrra skatta. —
Hvernig væri t.d. að gefa næsta
skatti nafnið SÍS-skatt, eða SlS-
gjald til að minna á, að hann er
tilorðinn vegna skattfrelsis þessa
stærsta auðhrings þjóðfélagsins ?
Þá er það ekki amalegt fyrir
kommagreyin, sem breyta þurfa
um nafn fyrir hverjar kosningar,
að íslenzkan er orða frjósöm
móðir. Eiga þeir í harðri keppni
við Eystein fóstbróður sinn um
ný nöfn og má varla á milli sjá
hver á undan fer í því efni!
Framsókn sjálfri
sér lík.
Trúmennska Framsóknar í
stjórnarsamvinnu og þarf ekki
frekari frásögn. En heilindi mad-
dömunnar koma víðar fram. —
Þegar kommúnistar reyndu að
tæla tvo lýðræðisflokka hér á
staðnum til fylgilags við sig gegn
Sjálfstæðisflokknum, sem myndað
hefur bæjarstjórnarmeirihluta
með Framsóknarflokknum og
stutt bæjarstjóra hans, strandar
tilboð kommanna á Alþýðuflokkn-
um — en Framsókn var fús til
skítverka!
(Framhald á 4. síðu)
Sömul vara í aýjum umbúðum
Á grímudansleik G-listans
D-listinn er listi SjálfstæðisYlokksins