Siglfirðingur


Siglfirðingur - 24.01.1958, Qupperneq 1

Siglfirðingur - 24.01.1958, Qupperneq 1
Miðvikudaginn 22. jan. 1958. O q ■ i D-listinn er listi Sjálfstœðismanna Niöursuðuverksmiðja í Rvík eða á Siglufirði ? Tillögur Vigfúsar Friðjónssonar og Egils Stefáns- sonar í því máli. Á þinginu 1954—’55 var að tilhlutan f járveitingarnefndar Alþingis kosin nefnd sérfróðra manna, sem gera skyldi fræðilega rannsókn varðandi hugsanlega möguleika á starfsemi stórrar niðursuðu- og niðurlagningarverksmiðju sjávarafurða til útflutnings. — Formaður þeirrar nefndar var dr. Jakob Sigurðsson, sem um margra ára skeið hefur unnið að markaðsöflun á erlendum vettvangi fyrir íslenzkar niðursuðuvörur. • Leitað álits Siglfirð- inga. Nefnd þessi sendi út fyrir- spurnanbréf til allra þeirra, sem fengizt höfðu við starfsemi á þessu sviði, m.a. til þeirra Vig- fúsar Friðjónssonar og Egils Stefánssonar. Eru svör þeirra til dr. Jakobs birt í nefndaráliti því, sem nefnd þessi skilaði Alþingi að lokinni rannsókn sinni. • Tillaga Vigfúsar: smiðja yrði reist í Reykjavík eða næsta nágrenni hennar. Orðrétt segir Vigfús í bréfinu: „Þá erum vér þess mjög fýs- andi, að athugaðir verði möguleikar fyrir því, hvort ekki væri hægt að stofnsetja eins stóra niðursuðu- og niðurlagningarverksmiðju, og I>A HELZT í REYKJAVÍK eða í grennd við hana —“ Þannig ætlaði liinn orðprúði G-lista frambjóðandi að leysa at- vinnuvandamál Siglfirðinga! framleiðsla færi fram hér í Siglu- firði og segir m.a. svo í bréfi hans. „Ég hefi ætíð álitið, að hér á Siglufirði ætti að viima á ýmsan hátt úr kryddsíldiimi, sem lögð er hér niður í tunn- ur á sumrin, svo sem gaffal- bita í dósir o.fl. — Við að vinna síldina hér á þann liátt, og selja hana úr landi, þá reiknast mér til, að gjald- eyrisverðmæti hennar að minnsta kosti þrefaldaðist, samanborið við að flytja hana út í heiltunnum-------“ Þannig var afstaða þessara tveggja manna til þessa hags- munamáls Siglufjarðar 1 bréfum, sem leggjast áttu fyrir Alþingi, sem kemur til með að ráða stað- setningu slíks fyrirtækis. Er rétt að muna þessar afstöður þeirra beggja við kjörborðið á sunnu- daginn. Reykjavík. Efsti maður G-listans, Vigfús Friðjónsson, lagði til að slík verk- Athugasemd Vegna ummæla hr. Vigfúsar Friðjónssonar í bæjarmálaumræð- um 23. þ.m., tel ég ástæðu til að taka fram eftirfarandi: Það er reginfirra hjá Vigfúsi, sem eigi má láta ómótmælt, að starfsmönnum opinberra stofnana eigi ekki að vera jafnfrjálst og hverjum öðrum að láta í ljós skoð- anir sínar, hverjar sem þær eru og um hvern sem er. Ég geri ráð fyrir, að samherja hans, Ármanni Jakobssyni, þættu það harðir kostir, ef ætlast væri til, að hann þegði um skoðanir sínar á stofnunum og mönnum, sem viðskipti eiga við IJtvegs- bankann, vegna þess að þeir skapa þær tekjur, sem laun hans eru greidd af. Hitt skiptir í þessu sambandi minna máh, að ég hef enga grein skrifað í „Siglfirðing“ um alllang- an tíma og engan þátt átt í skrif- um blaðsins undanfarið, hvorki grein þeirri, sem fór svo óþyrmi- lega í taugar Vigfúsar, né öðrum. Væri betur, að aðrar fullyrð- ingar Vigfúsar um þessar mundir reyndust byggðar á traustari heimildum. Siglufirði, 24. jan. 1958. Jón Stefánsson • Tillaga Effils: Sifflu- fjörður. Egill Stefánsson svaraði þessu bréfi dr. Jakobs á allt aðra leið og þarfari hagsmunum Siglfirð- inga. Rökstuddi Egill það að slík EINAR I N OI M U N DIA R 8 O N : Þad er kosið um tvennt Bæjarstjórnarkosningarnar, er fram eiga að fara á sunnudaginn kemur, verða að því leyti sér- stæðar, að auk þess að kjósend- ur segja til um það með atkvæð- um sínum, hverjum iþeir treysta helzt til að stjórna málefnum byggðarlags síns, votta þeir einnig núverandi ríkisstjórn traust eða lýsa á hana vantrausti. Hjá þessu getur ekki farið, eins og allt var í pottinn búið við síðustu Alþingiskosningar og valdatöku hinnar svonefndu „vinstri stjórnar“ að þeim lokn- um. í kosningabaráttunni vorið 1956, gerðu áróðursmenn núver- andi stjómarflokka, Alþýðu- flokksins, Framsóknarflokksins og hins svonefnda Alþýðubandalags það að aðalatriði, að Sjálfstæðis- flokkurinn yrði útilokaður frá öll- um áhrifum um stjórn landsins. Ef það tækist myndi allur að- steðjandi vandi verða tiltölulega auðleystur, varnarliðið skyldi tafarlaust rekið úr landi, hvað sem hver segði,efnahangsvanda- málin skyldu leyst 1 snatri, alls- herjar uppbygging skyldi hafin þegar í stað o.s.frv. o.s.frv. Mér er nær að haWa, að allir — hver og einn einasti — þeirra manna, sem skipa efstu sæti A, B og G listanna við þessar bæjar- stjórnarkosningar hafi gert sitt til að telja siglfirzkum ikjósendum trú um það fyrir síðustu Alþingis- kosningar, að blómaskeið myndi upp renna fyrir Siglufjörð og landsbyggðina alla, ef það tækist að koma Sjálfstæðisflokknum frá völdum. Ekkert skal ég um það segja, hvort þessir menn hafi sjálfir trúað á þennan áróður sinn. Hitt er öllum landslýð kunn- ugt, að hafi þjóðarskútunni nokkru sinni verið siglt í strand, þá hefir hin svonefnda „vinstri stjóm“ gert það. Fátt eitt af því, sem horfir til réttrar áttar hefir undir hennar stjórn þokazt fram Hótanir Ármanns Á árinu 1957 hefur alls verið innheimt í útsvörum og fast- eignagjöldum kr. 4.545.046,00. — Með tilliti til þess, að útsvarsskrá kom ekki fram fyrr en í ágúst, verður að teljast, að hér sé um allsæmilega innheimtu að ræða, með hliðsjón af atvinnuástand- inu í bænum og greiðslugetu bæjarbúa almennt. En Ármanni finnst ekki nógu hart gengið að bæjarbúum, þeir séu ekki plokkaðir nóg í atvinnu- leysinu, hann skyldi sko ganga harðar að þeim, þegar hann sett- ist í sæti Jóns Kjartanssonar, kippa innheimtunni í lag. Slíkar voru hótanir lögfræðingsins í garð þeirra efnalitlu, þeirra, sem ekki hafa getað staðið í skilum sökum atvinnuleysis, sem ríkis- stjórnin hafði að vísu lofað að bæta úr! Minnir þetta á kommún- istalögfræðinginn í Rvík, sem bar út ekkjuna, sem frægt er orðið. Þessum dónalegu hótunum bankamannsins í garð sigl- firzkra gjaldenda, sem flestir eru skilamenn góðir, og gera það ekki að gamni sínu að skulda opinber gjöld, og ekki bera sök á svikum ríkis- stjórnariimar í atvinnumál- um, verður svarað á viðeig- andi hátt á sunnudaginn kemur. á við, heldur flest aitur á bak, og nú eftir að „vinstri stjómin“ hefir setið að völdum í 1 ýó er hún óg stjórnarflokkarnir allir orðnir berir af þeim feriegustu svikum á kosningaloforðum, sem sennilega getur um í íslenzkri stjórnmálasögu. Á valdatímaJbili þessarar ríkisstjórnar hefir hlut- ur Siglufjarðar verið sérstaklega fyrir borð borinn og sanngjörn- um fyrirgreiðslubeiðnum forráða- manna bæjarfélagsins verið mætt af engum skilningi af hálfu vald- hafanna. Það eru sízt meðmæh með mönnum þeim, sem standa að listum stjómarflokkanna við þess- ar bæjarstjórnarkosningar, — að mörgum iþessara manna, — þó ólöstuðum — að hafa látið hafa sig til iþess fyrir síðustu Al- þingiskosningar að taka þátt í þeim berserksgangi með fagur- gala og loforðaglamri, sem þá var háður og alþjóð sér nú hvers- konar skollaleikur var. Öll sætin á lista Sjálfstæðis- floktsins við bæjarstjórnarkosn- Framhald á 2. síðu

x

Siglfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.