Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1969, Blaðsíða 8

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1969, Blaðsíða 8
8 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ þátt í námskeiðum og eru sjálf kennarar. Öllum er fyrir- skipað að tala ,,sama“ málið og uppörva og hjálpa á sama veg. Merkilegt og ánægjulegt þótti mér að sjá, að aldrei var ýtt á eftir fylgju svo nokkru næmi. Þegar barnið var fætt, var það tekið, laugað og gengið frá því. Þá fyrst var farið að huga að því að fá fylgjuna til að koma og voru þá oftast liðnar frá 20—30 mín. Ég vil geta þess hér um leið, að Bretar ýta aldrei á eftir fylgju nema þá í undan- tekningum. Þeir leggja vinstri hendi létt ofan við synfysu um leið og togað er létt í naflastreng niður á við með hægri hendi. Þetta hvorutveggja er gert af ljósmóðurinni sjálfri, sem tekur á móti. f nýjustu sjúkrahúsum Breta eru barnastofur fyrir heilbrigðu börnin svo gott sem óþekkt fyrirbæri. Börnin eru inni hjá mæðrum sínum allan sólarhringinn. Þannig var það einnig í París. Einkennandi fyrir sjúkrahúsmál Svía er, að nóg virðist vera af öllu. Enda Svíþjóð ekki að ástæðulausu kölluð mesta velferðarríki álfunnar og þótt víðar væri leitað. í því felst þó ekki einvörðungu það, sem gott er, einnig því fylgja vandamál, sem jafnvel gestsaugað sér fljótt. Margt var að læra, og margt var að sjá, en þar sem ég verð að stikla á stóru, læt ég nægja að nefna ,,stolt“ Svíanna, Bláklintshemmet í Linköping. Það er stofnun, sem er þannig uppbyggð, að konurnar koma þangað á 3. degi frá fæðingarspítalanum í Linköping. Þá eru þær komnar á fætur, hugsa að mestu um sig sjálfar og börn sín einnig- Örfáum reglum verða þær að fylgja, en að öðru leyti mjög frjálsar og mega fara sinna ferða jafnvel út í borg' ina til að verzla. Heimsóknartímar lítt takmarkaðir og fleira í þessa átt. Húsið sjálft er gamalt á tveim hæðurfli en allt er þar til alls og vel að öllu búið. Margt, sem þarna var haft um hönd, líkaði mér mjög vel, enda mjög \ík\ því, sem við höfum haft um hönd í Fæðingarheimil1

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.