Neisti - 20.02.1983, Page 1
Málgagn Alþýðuflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra
1. tölublað
Laugardagur 20. febrúar 1983
51.árgangur
Þessi ríkisstjóm hefur gert oflítið
— of seint.
Ólafur Jóhannesson, ráðh.
Ríkisstjórnin er komin íþrot.
Ingvar Gíslason, ráðh.
Engir bíða útfarardagsins með jafnmikilli óþreyju og
aðstandendur þessarar ríkisstjórnar.
Stefán Jónsson, alþm.
Dr. Jón Sæmundur Sigur iónsson:
Dæmalaus ferill
sjávarútvegsráðherra
Sjávarútvegur er undirstöðu-
atvinnuvegur íslendinga. Mikið
er í húfi að vel sé unnið á því
sviði. bæði af háum og lágum.
Það er hins vegar sorgleg stað-
reynd, að það virðist sama
hversu mikið sjómenn og land-
verkafólk leggja að sér. Ef
stefnulaus hringlandi ríkir hjá
forustunni er stór hluti erfiðis
verkafólksins unninn fyrir gýg.
Það er talað um að kreppan sé
farin að berja á dyr og stjórn-
arherrarnir vilja kenna stöð-
unni í alþjóðamálum þar um.
Svo mikið er víst. að efnahags-
vandræði nágrannaþjóðanna
eru ekki ný af nálinni. þannig
að einhverjir varnarmúrar hafa
gefið eftir þegar þau vandræði
eru allt í einu farin að hafa áhrif
hér á landi.
Þau kreppuáhrif, sem ís-
lendingar eru þegar farnir að
kynnast, aukið atvinnuleysi.
aukin greiðsluvandræði bæði
hjá fyrirtækjum og einstakling-
um. aukin gætni í innkaupum
verslunarinnar o.s.frv., eru að
stærstum hluta heimatilbúin.
Ferill sjávarútvegsráðherra í
þessu sambandi er með slíkum
hætti að dæmalaust verður að
teljast. Þetta er sennilega sá
dýrasti ráðherra, sem íslend-
ingar hafa haft bæði fyrr og
síðar. Engum er þó alls varnað.
og ekki Steingrími heldur.
Samherjar Steingríms dást að
dugnaði hans. Það er eðlilegt.
En það er óttalegt. þegar ráðist
er af dugnaði í að framkvæma
rangar ákvarðanir. Sú pólitík er
rekin á baki launafólks. Það
borgar brúsann með verri af-
komú.
LEYFILEGT AFLAMAGN
Allir vita að gæði lífsins eru
takmörkuð. Stjórnmál ganga að
stórum hluta út á það að leið-
rélta misskiptingu þessara
gæða. sem orðið hafa í frjálsum
samskiptum manpa á meðal.
Þar er vissulega oft vandratað
meðalhófið. Á seinni árum
hefur mönnum einnig orðið æ
ljósari sú staðreynd. að gæði
náttúrunnar eru allt annað en
óendanleg. Sé jafnvægi náttúr-
unnar raskað á óprúttinn hátt
er voðinn vís. Saga Norður-
landssíldarinnar kennir okkur
hver niðurstaðan er. þegar
dugnaður og röng stefnumörk-
un fara saman. Þá má segja. að
menn hafi ekki vitað betur.
Fiskifræðingarnir voru þá ekki
það langt komnir. Síðustu tíu
árin hefur þessum vísindum þó
flevgt það fram. að það er full-
Dr. Jón Sœmundur Sigurjónsson
komið ábyrgðarleysi að hundsa
niðurstöður þeirra.
Samherjar Steingríms segja.
að honum verði ekki kennt um
aflabrest. Hann ráði ekki göng-
um fiskanna í sjónum. Það
verði menn að gera upp við
forsjónina. Engu að síður hafa
fiskifræðingar viljað hafa hönd
i bagga með forsjóninni og
þessvegna lagt til veiðitak-
markanir í a.m.k. heilan áratug.
Sú loðna. sem hefði átt að
veiðast sl. haust, hefði átt að
verða til sem hrogn vorið 1980.
ftrekaðar tillögur fiskifræðinga
eftir margendurteknar rann-
sóknir voru að ekki skyldi veiða
nema tæp 300 þús. tonn af
loðnu frá 1. janúar 1980 til ver-
tíðarloka. í bréfi til sjávarút-
vegsráðherra í janúar 1980
sögðu þeir Hjálmar Vilhjálms-
son og Jakob Jakobsson að
frekari veiðar úr loðnustofnin-
um á þessu tímabili væru ..utan
skynsamlegra marka". Þrátt
fyrir þessar aðvaranir heimilaði
Steingrímur 33% aukningu
loðnuveiða.
Árið 1975 var hrygningar-
stofn loðnunnar 4'A milljón
lesta. í ársbyrjun 1979 var
stofninn kominn niður í 1,3
milljónir lesta. en þá þegar
hafði Kjartan Jóhannsson. þáv.
sjávarútvegsráðherra. beitt tak-
mörkunum og stöðvunum á
loðnuveiðar. Fyrsta verk Stein-
gríms. er hann tók við, var að
auka heimildir til loðnuveiða.
þannig að í ársbyrjun 1980 var
stofninn kominn niður í 800
þús. lestir. Á síðasta ári var
samt sem áður leyfður 617 þús.
tonna aflakvóti.
Árni Gunnarsson hefur
margsinnis gert ofveiði loðn-
unnar sérstaklega að umtalsefni
í fjölmiðlum og þingsölum og
varað við henni. Tvívegis á
þinginu 1981—1982 krafðist
Árni þess að loðnuveiðar yrðu
stöðvaðar án þess að sjávarút-
vegsráðherra sinnti því. Ekkert
gerðist. Nú súpa menn seyðið af
því. Loðnuveiðibannið kom
alltof seint og ekki fyrr en enga
bröndu var að fá, hvort eð var.
Vinnslustöðvarnar á Norður-
landi hafa orðið fyrirómældum
búsifjum vegna hringlanda-
háttar og geðleysis ráðherrans.
En Steingrímur ber enga
ábyrgð gerða sinna frekar en
aðrir kommissarar rányrkju-
stefnunnar. Hverjum var ætlað
að taka afleiðingunum? Fyrst
og fremst sjómönnum og í ann-
an stað launþegum í landi.
Ráðherrar rányrkjustefnunnar
kunna nú engin önnur ráð en
að taka af hlut sjómanna og af
launum launþega og leggja í
sjóði atvinnurekenda. Nú þegar
reikningurinn er kominn eiga
menn aðeins eftir að kvitta fyr-
ir.
En ekki er riðið við einteym-
ing. Hrun loðnustofnsins kem-
ur ekki bara við kaunin á fólki í
landi. Loðnan er ein megin-
uppistaðan í fæðu þorsksins.
Það leikur lítill vafi á því að
tregur afli báta fyrir Norður-
landi og óvenjuleg hegðun
þorsksins þar, 4 m. a. rætur að
rekja til þess að loðnan, sem er
undirstaða fæðu þorsksins á
þessum slóðum á vissum árs-
tímum. er nánast horfin. Árin
1980 og 1981 heimilaði sjávar-
útvegsráðherra samtals 200
þúsund tonna meiri þorskafla
en fiskifræðingarnir töldu ráð-
legt. Afleiðingin var að sjálf-
sögðu sú að þessi ár urðu algjör
Framhuld á 5. síðu
PÚNKTAR
• Eiður Guðnason mælti fyrir þingsályktunartillögu þess efnis, að
íslendingar mótmæltu samþykkt Alþjóða hvalveiðiráðsins um al-
gjört bann við hvalveiðum frá og með árini 1986. Nokkrir þingmenn,
þ. á m. sjávarútvegsráðherra, voru sama sinnis, meðan aðriróttuðust
áhrifin sem þetta kynni að hafa á fiskmarkaði okkar erlendis vegna
mótmæla hvalverndunarmanna. Athygli vakti, að enginn þing-
manna taldi náttúruverndarsjónarmið vega þungt í þessu sambandi.
Alþingi samþykkti með 29 : 28 atkvæðum að mótmæla ekki þessu
banni. þannig að Islendingar hafa afsalað sér réttinum til hvalveiða.
• Sjávarútvegsráðuneytið hefur nú heimilað rækjuveiðar á Axar-
firði að nýju, eftir nánast tveggja ára hlé á veiðum þar. Það er
fyrirtækið Sæblik, sem leyfi hefur fengið til veiðanna, og munu þær
væntanlega hefjast í byrjun febrúar.
• Fiskveiðisjómenn fá sent ókeypis lesefni frá hinu opinbera. Sjó-
mennirnir fá að lesa erindi sem flutt voru á ráðstefnu um orku-
sparnað á fiskveiðum. Þetta er einn liður í aðgerðum stjórnvalda til
að reyna að draga úr orkunotkun í sjávarútvegi. Ákveðið hefur verið
að verja nokkru fé úr gengismunasjóði til lánveitinga í þessu skyni.
Fyrst um sinn er ætlunin að aðstoða einvörðungu þau skip sem falla
undir skrapdagakerfi ráðuneytisins og hyggjast breyta yfir í svart-
olíu. Athyglisvert er í þessu sambandi, að orkureikningar Akur-
eyrartogara, sem ganga fyrir gasolíu, voru ekki hærri en orkureikn-
ingar Reykjavíkurtogara, sem ganga fyrir syartolíu. Viðhaldskostn-
aður Reykjavíkurtogaranna var hins vegar mun hærri á síðasta ári.
• í júlí á síðasta ári skilaði starfshópur Steingrims Hermannssonar
tillögum um lausn á rekstrarvanda sjávarútvegsins, sem fólst í
framlagi ríkissjóðs upp á 250 milljónir króna og sitt hvorum 30
milljónunum frá Fiskveiðasjóði og Áflatryggingasjóði. Þetta kallaði
Ragnar Arnalds fjármálaráðherra „botnlaust óraunsæi" og spurði
„hvar í nálægu landi slík endaleysa gæti viðgengist“. Þótt þarna
rataðist kjöftugum satt á munn gekk þó þessi stefna í meginatriðum
eftir. Ragnar setti að vísu hljóðan, en virðist að öðru leyti líða bara
dægilega í öllu sukkinu.
% Áætlað er að söluverðmæti fiskafurða er Coldwater selur í
Bandaríkjunum á þessu ári nemi milli 190 og 200 milljónum
bandarískra dollara. Þetta mun vera álíka upphæð og selt var fyrir til
Bandaríkjanna árið 1981. Coldwater er dótturfyrirtæki Sölumið-
stöðvar Hraðfrystihúsanna.
0 Vandræði komu upp á síðasta ári í saltfiskútflutningi er Portú-
galar kvörtuðu undan lélegum gæðum. Fram kom að mistök höfðu
átt sér stað hér heima í flokkun fisksins. Eins var sagt, að menn væru
ekki nógu vel að sér í notkun kæligeymsla. í flutningnum verður
fiskurinn blautari en æskilegt er og skemmist að hluta. Þar að auki
var fiskurinn því miður að hluta til illa verkaður svo og nokkuð af
hráefninu ekki nógu gott.
Framsóknarlagið: Biti framan, blaðstýft aftan — til að plata Steingrím. —