Neisti - 15.04.1983, Blaðsíða 1

Neisti - 15.04.1983, Blaðsíða 1
Elín Helga Njálsdóttir Pétur Valdimarsson Hjálmar Eyþórsson 2. tölublað Föstudagur 15. apríl 1983 51. árgangur Baldur Ingvarsson Pála Pálsdóttir FRAMBOÐSLISTI Alþýðuflokksins á Norðurlandi vestra Jón Sœmundur Sigurjónsson Alþýðuflokksmenn gengu endanlega frá framboðslista fiokksins f Norð- urlandskjördæmi vestra á fundi kjördæmisráðs, sem haldinn var á Blöndu- ósi laugardaginn 12. mars s.l. Tekið var tillit til niðurstöðu prófkjörs, svo og til tillagna allra flokksfélaganna í kjördæminu um röðun á listann. 1. sæti listans skipar dr. Jón Sæmundur Sigurjónsson, hagfræðingur. Jón Sæmundur er fæddur þ. 25.11.1941 á Siglufirði. Hann lauk hag- fræðinámi 1973 í Köln í Þýska- landi. Hann stundaði há- skólakennslu í Köln, starfaði við sendiráð íslands í Bonn, en frá 1977 hefur hann verið deildarstjóri tryggingadeildar Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytisins. Hann er eini ís- lenski hagfræðingurinn sem hefur sérhæft sig í lífeyris- og almannatryggingamálum. Vandamál íslensku þjóðarinnar eru fyrst og fremst efnahagslegs eðlis. Menntun Jóns Sæmundar og starfsreynsla gera hann að sérstaklega hæfum fulltrúa þessa kjördæmis á Alþingi. Jón Sæmundur er kvæntur Birgit Henriksen frá Siglufirði og eiga þau eina dóttur. 2. sæti skipar Elín Helga Njálsdóttir, póstafgreiðslumað- ur Skagaströnd. *• Fædd 5.11.1946. Hefur setið í sveita- stjóm Skagastrandar síðan 1978, og á sæti í stjóm verka- mannabústaða. Gegnir ýmsum trúnaðarstörfum á vegum póst- manna. Gift Magnúsi Ólafs- syni. 3. sæti skipar Sveinn Benónýsson, bakarameistari, Hvammstanga. Hann fæddist 5. maí 1951. Sveinn er formað- ur Alþýðuflokksfélags Vest- ur-F 'inavatnssýslu, og var áður ritari * 11 'ðuflokksfélags Eski- fjaróar. Hann er kvæntur Svövu Lilju Magnúsdóttur og eiga þau tvö böm. 4. sæti skipar Pétur Váldi- marsson, iðnverkamaður, Sauðárkróki, fæddur 22.07., 1950. Pétur er í stjorn Verka- lýðsfélagsins Fram, og hefur verið varaformaður frá 1978. Hann situr í stjórn verka- mannabústaða á Sauðárkróki. Hann er kvæntur Rögnu Jó- hannsdóttur. 5. sæti skipar Regina Guðlaugsdóttir, íþróttakennari, Siglufirði. Fædd 6. september 1928. Hefur starfað mikið í Al- þýðuflokksfélagi Siglufjarðar og er nú ritari þess. Hefur tekið mikinn þátt i félagsstarfi á Siglufirði. íþróttakennari við Grunnskóla Siglufjarðar í mörg ár. Regína er gift Guðmundi Ámasyni, póst- og símstöðvar- stjóra. 6. sæti skipar Hjálmar Eyþórsson, fyrrverandi lög- reglumaður, Blönduósi. Fædd- ur 4.12.1917. Starfaði sem hér- aðslögreglumaður í Húna- vatnssýslu frá 1958, þar til hann var skipaður lögregluþjónn 1964. Kvæntur Kristínu Helga- dóttur frá Hvarfi í Víðidal, V estur-H únavatnssýslu. 7. sæti skipar Axel Hall- grímsson, sjómaður, Skaga- strönd. Axel fæddist 29. júní 1957. Hann er lærður skipa- smiður. Sambýliskona hans er Herborg Þorláksdóttir. 8. sæti skipar Baldur Ing- varsson, verslunarmaður, Hvammstanga. Hann fæddist 19. febrúar 1933. Baldur hefur unnið hjá K.V.H. síðan 1958, fyrst í mjólkurstöð í 14 ár, en síðan við frysti- og sláturhús. Hann er ritari Alþýðuflokksfé- lags Vestur-Húnavatnssýslu og varamaður í kjördæmaráði. Baldur er kvæntur Guðlaugu J. Sigurðardóttur, verkstjóra, og eiga þau þrjú böm. 9. sæti skipar Sigmundur Pálsson, húsgagnasmiður, Sauðárkróki. Hann er fæddur 28.11. 1932. Sigmundur er gjaldkeri Alþýðuflokksfélags Sauðárkróks og hefur verið í stjórn þess í mörg ár. Situr nú í flokksstjórn. Hann hefur auk þess verið virkur í ýmsum fé- lagsmálum t. d. Lionsklúbbi Sauðárkróks. Sigmundur er kvæntur Guðlaugu Gísladóttur frá Ólafsfirði og eiga þau fjórar dætur. 1 10. sæti er Pála Pálsdóttir, fv. kennari, Hofsósi. Tók kennara- próf 1933. Var kennari og síðan skólastjóri á Súðavík til 1939. Kennari á Hofsósi frá 1939—1974. Organisti við 3 og 4 kirkjur. Hefur tekið mikinn þátt í félagsmálum, s. s. form. kvenfélagsins og form. Sam- bands skagfirskra kvenna, setið í sóknamefnd o. m. fl. Giftist 1940 Þorsteini Hjálmarssyni. Á síðasta ári var Pála sæmd íslensku Fálkaorðunni af For- seta Islands fyrir margvísleg störf að menningarmálum. Framboðslisti Alþýðuflokks- ins er skipaður góðu og traustu fólki úr öllum byggðarlögum kjördæmisins. I fyrsta skipti í sögu kjördæmisins er Siglfirð- ingur í efsta sæti framboðslista. Enginn annar stjórnmálaflokk- ur býður fram konu svo ofar- lega á hsta sem Alþýðuflokkur- inn. Frambjóðendur Bandalags jafnaðarmanna koma mest- megnis úr Alþýðubandalaginu, með smávegis framsóknar- stuðningi. Framsóknarflokkur- inn er klofinn og sundraður. Sjálfstæðisflokkurinn er tví- höfða þurs. Alþýðuflokkurinn er því eini flokkurinn sem gengur óskiptur til þessara kosninga með ferskleika þess, sem tilbúinn er til átaka við vandamál þau, sem gjaldþrota ríkisstjóm skilur eftir sig. Sveinn Benónýsson Regína Guðlaugsdóttir A xel HaUgrímsson Sigmundur Pál »i tr x-A — Flokkurinn sem hefur frumkvæöid

x

Neisti

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.