Neisti - 15.04.1983, Qupperneq 1
Elín Helga Njálsdóttir
Pétur Valdimarsson
Hjálmar Eyþórsson
2. tölublað
Föstudagur 15. apríl 1983
51. árgangur
Baldur Ingvarsson
Pála Pálsdóttir
FRAMBOÐSLISTI
Alþýðuflokksins á
Norðurlandi vestra
Jón Sœmundur Sigurjónsson
Alþýðuflokksmenn gengu endanlega frá framboðslista fiokksins f Norð-
urlandskjördæmi vestra á fundi kjördæmisráðs, sem haldinn var á Blöndu-
ósi laugardaginn 12. mars s.l. Tekið var tillit til niðurstöðu prófkjörs, svo
og til tillagna allra flokksfélaganna í kjördæminu um röðun á listann.
1. sæti listans skipar dr. Jón
Sæmundur Sigurjónsson,
hagfræðingur. Jón Sæmundur
er fæddur þ. 25.11.1941 á
Siglufirði. Hann lauk hag-
fræðinámi 1973 í Köln í Þýska-
landi. Hann stundaði há-
skólakennslu í Köln, starfaði
við sendiráð íslands í Bonn, en
frá 1977 hefur hann verið
deildarstjóri tryggingadeildar
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytisins. Hann er eini ís-
lenski hagfræðingurinn sem
hefur sérhæft sig í lífeyris- og
almannatryggingamálum.
Vandamál íslensku þjóðarinnar
eru fyrst og fremst efnahagslegs
eðlis. Menntun Jóns Sæmundar
og starfsreynsla gera hann að
sérstaklega hæfum fulltrúa
þessa kjördæmis á Alþingi. Jón
Sæmundur er kvæntur Birgit
Henriksen frá Siglufirði og eiga
þau eina dóttur.
2. sæti skipar Elín Helga
Njálsdóttir, póstafgreiðslumað-
ur Skagaströnd. *• Fædd
5.11.1946. Hefur setið í sveita-
stjóm Skagastrandar síðan
1978, og á sæti í stjóm verka-
mannabústaða. Gegnir ýmsum
trúnaðarstörfum á vegum póst-
manna. Gift Magnúsi Ólafs-
syni.
3. sæti skipar Sveinn
Benónýsson, bakarameistari,
Hvammstanga. Hann fæddist
5. maí 1951. Sveinn er formað-
ur Alþýðuflokksfélags Vest-
ur-F 'inavatnssýslu, og var áður
ritari * 11 'ðuflokksfélags Eski-
fjaróar. Hann er kvæntur
Svövu Lilju Magnúsdóttur og
eiga þau tvö böm.
4. sæti skipar Pétur Váldi-
marsson, iðnverkamaður,
Sauðárkróki, fæddur 22.07.,
1950. Pétur er í stjorn Verka-
lýðsfélagsins Fram, og hefur
verið varaformaður frá 1978.
Hann situr í stjórn verka-
mannabústaða á Sauðárkróki.
Hann er kvæntur Rögnu Jó-
hannsdóttur.
5. sæti skipar Regina
Guðlaugsdóttir, íþróttakennari,
Siglufirði. Fædd 6. september
1928. Hefur starfað mikið í Al-
þýðuflokksfélagi Siglufjarðar
og er nú ritari þess. Hefur tekið
mikinn þátt i félagsstarfi á
Siglufirði. íþróttakennari við
Grunnskóla Siglufjarðar í mörg
ár. Regína er gift Guðmundi
Ámasyni, póst- og símstöðvar-
stjóra.
6. sæti skipar Hjálmar
Eyþórsson, fyrrverandi lög-
reglumaður, Blönduósi. Fædd-
ur 4.12.1917. Starfaði sem hér-
aðslögreglumaður í Húna-
vatnssýslu frá 1958, þar til hann
var skipaður lögregluþjónn
1964. Kvæntur Kristínu Helga-
dóttur frá Hvarfi í Víðidal,
V estur-H únavatnssýslu.
7. sæti skipar Axel Hall-
grímsson, sjómaður, Skaga-
strönd. Axel fæddist 29. júní
1957. Hann er lærður skipa-
smiður. Sambýliskona hans er
Herborg Þorláksdóttir.
8. sæti skipar Baldur Ing-
varsson, verslunarmaður,
Hvammstanga. Hann fæddist
19. febrúar 1933. Baldur hefur
unnið hjá K.V.H. síðan 1958,
fyrst í mjólkurstöð í 14 ár, en
síðan við frysti- og sláturhús.
Hann er ritari Alþýðuflokksfé-
lags Vestur-Húnavatnssýslu og
varamaður í kjördæmaráði.
Baldur er kvæntur Guðlaugu J.
Sigurðardóttur, verkstjóra, og
eiga þau þrjú böm.
9. sæti skipar Sigmundur
Pálsson, húsgagnasmiður,
Sauðárkróki. Hann er fæddur
28.11. 1932. Sigmundur er
gjaldkeri Alþýðuflokksfélags
Sauðárkróks og hefur verið í
stjórn þess í mörg ár. Situr nú í
flokksstjórn. Hann hefur auk
þess verið virkur í ýmsum fé-
lagsmálum t. d. Lionsklúbbi
Sauðárkróks. Sigmundur er
kvæntur Guðlaugu Gísladóttur
frá Ólafsfirði og eiga þau fjórar
dætur.
1 10. sæti er Pála Pálsdóttir, fv.
kennari, Hofsósi. Tók kennara-
próf 1933. Var kennari og síðan
skólastjóri á Súðavík til 1939.
Kennari á Hofsósi frá
1939—1974. Organisti við 3 og
4 kirkjur. Hefur tekið mikinn
þátt í félagsmálum, s. s. form.
kvenfélagsins og form. Sam-
bands skagfirskra kvenna, setið
í sóknamefnd o. m. fl. Giftist
1940 Þorsteini Hjálmarssyni.
Á síðasta ári var Pála sæmd
íslensku Fálkaorðunni af For-
seta Islands fyrir margvísleg
störf að menningarmálum.
Framboðslisti Alþýðuflokks-
ins er skipaður góðu og traustu
fólki úr öllum byggðarlögum
kjördæmisins. I fyrsta skipti í
sögu kjördæmisins er Siglfirð-
ingur í efsta sæti framboðslista.
Enginn annar stjórnmálaflokk-
ur býður fram konu svo ofar-
lega á hsta sem Alþýðuflokkur-
inn. Frambjóðendur Bandalags
jafnaðarmanna koma mest-
megnis úr Alþýðubandalaginu,
með smávegis framsóknar-
stuðningi. Framsóknarflokkur-
inn er klofinn og sundraður.
Sjálfstæðisflokkurinn er tví-
höfða þurs. Alþýðuflokkurinn
er því eini flokkurinn sem
gengur óskiptur til þessara
kosninga með ferskleika þess,
sem tilbúinn er til átaka við
vandamál þau, sem gjaldþrota
ríkisstjóm skilur eftir sig.
Sveinn Benónýsson
Regína Guðlaugsdóttir
A xel HaUgrímsson
Sigmundur Pál »i
tr
x-A — Flokkurinn sem hefur frumkvæöid