Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Síða 7
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
55
Var þetta hin besta skemmtun og söngvurum klappað
óspart lof í lófa. Heim á hótel var svo komið um kl. 1 eftir
miðnætti.
Næsti dagur endaði einnig með veislu og nú var það í boði
Oslóborgar, á ekki ómerkari stað en í sjálfu Ráðhúsinu.
Ráðhúsið er mikil bygging og falleg, salir stórir og margir og
fagurlega skreyttir. Jafnframt er þarna mikið safn dýrra og
sjaldgæfra muna, bæði þarlendra og erlendra. Er fróðlegt og
gaman að sjá þetta allt. Boð þetta var bæði myndarlegt og
ljósmæðrum til ánægju. Ég má til með að geta þess hér, að
með mér á þessu ferðalagi var 14 ára bróðursonur minn,
Egill, en móðir hans var ljósmóðir. Var honum boðið að
koma með mér í þessa Ráðhúsveislu. Ekki var annað að sjá
en þessi ungi maður kynni vel að meta „selskapet”, en hann
var annar herrann af tveimur, sem þama voru. Hinn var
borgarstjóri Oslóborgar (eða staðgengill hans), sá er tók á
móti okkur til þessa fagnaðar.
Eftir að þingi lauk þ. 15. júní, gátu þær sem vildu og
höfðu ákveðið áður, farið í sameiginlegt ferðalag út á Bygdö
(Byggðarey), þar sem skoðuð voru söfn og síðan borðað
saman og sýndir þjóðdansar.
Sjáum við, að í mörg horn var að líta ef vel á að takast
skipulagning á móti sem þessu. f stórum dráttum var þetta
mjög vel af hendi leyst hjá frændum vorum Norðmönnum.
Smávegis erfiðleikar virtust skapast í anddyri hótelsins,
þegar ljósmæður komu til þess að láta skrá sig. Eitt var þó
sem að mínu mati hefði mátt skipuleggja betur, en það var
staðsetning gesta frá ýmsum löndum í sjálfu hótelinu. Hótel
þetta er stórt og margra hæða, með mörgum inngöngum.
Við frá íslandi og hinum Norðurlöndunum vorum dreifðar
út um allt hótel og þótti okkur heldur óhagræðing í því.
Aðbúnaður var annars góður. Morgunmatur var á staðnum
og á mótstað var matsalur rétt við. Stutt var í lestar og
þægilegt að komast milli staða þótt fólk væri ókunnugt.
bingið fór hið besta fram og var til fróðleiks, skemmtunar og
aukinna kynna ljósmæðra á Norðurlöndunum.