Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Page 11

Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Page 11
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 59 ástæðum. Ljósmæðrafélag íslands hefur ítrekað óskir sínar um að ljósmæðralögin verði endurskoðuð, en án árangurs. Allt fram á okkar daga hefur það verið hefð á íslandi, eins og trúlega annars staðar, að ljósmóðirin í byggðarlaginu hefur verið stoð og stytta fólksins, ekki aðeins í aðstoð og eftirliti um meðgöngutímann, í fæðingu, eftir fæðingu og ungbarnaeftirliti, heldur á fjölmörgum öðrum sviðum. Nú er þetta að verða liðin tíð. Þær ljósmæður, u.þ.b. 40 að tölu, sem enn eru í umdæmum, og starfa samkvæmt lögunum frá 1933, hafa sumar mjög lítið starf með höndum, nema þá helst að fylgja konum á fæðingarstofnanir, oft um langan veg. Hinar gegna enn heilsugæslu dreifbýlisins, þar í falið einnig ungbarnaeftirlit, þótt það sé í raun ekki viðurkennt, sem þeirra löglega starf. f nýjum lögum um heilbrigðisþjónustu á íslandi eru ákvæði um, að ljósmóðir skuli vera starfandi í hverri heilsugæslustöð. Samkvæmt samþykkt alþjóðaþings ljósmæðra í Washing- ton, árið 1972, var starfssvið ljósmæðra skilgreint þannig: Fæðingarhjálp, umönnun um meðgöngutímann, meðferð ungbarna og mæðra eftir fæðingu, fjölskylduáætlanir og foreldrafræðsla. Ljósmæðrafélag íslands hefur lagt áherslu á að tekið sé mið af þessu við væntanlega breytingu á úreltum ljósmæðralögum, enda eru þetta í raun þær starfsreglur, sem íslenskar ljósmæður hafa starfað eftir frá upphafi, nema tveir síðustu þættirnir, foreldrafræðsla og fjölskylduáætlanir, sem hafa bæst við nú á seinni árum. En óðum færist nú í aukana, að aðrir hópar úr heilbrigðisstéttum annist konur í sængur- legum, svo sem hjúkrunarkonur og sjúkraliðar, en sam- kvæmt íslenskum lögum er þetta lögverndað svið ljósmæðra. f þessu sambandi vil ég leyfa mér að benda á þær staðreyndir, að á sængurkvennagangi kvennadeildar ríkis- spítaans í Reykjavík er ekki heimild fyrir einni einustu ljósmóður, og heldur ekki á kvenlækningadeild, þ.e. með- göngudeild. Ljósmæður eru að vísu í starfi nú sem stendur á báðum þessum deildum, en þetta hlýtur að teljast alvarlegt mál frá sjónarmiði ljósmæðra, þ.e.a.s., hvernig að þessum málum er staðið nú, og allt bendir til að foreldrafræðslan og fjölskyldu- áætlunin fari brátt af höndum ljósmæðra, þannig að eftir

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.