Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Side 14
62
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
viðurkenning til viðkomandi, hlaut Guðrún Teitsdóttir
ljósmóðir.
Dýrfinna Sigurjónsdóttir rasddi um minningarsjóð ljós-
mæðra, en reikningar sjóðsins voru ekki lagðir fram af hendi
gjaldkera.
Skyrsla formanns lá frammi á fundinum, ásamt meðfylgj-
andi bréfum og reikningum félagsins og stéttartalsins.
Nokkrar umræður urðu um endurmenntun ljósmæðra.
Kristín Tómasdóttir yfirljósmóðir ræddi um fyrirhugaða
endurmenntun á vegum Ljósmæðraskólans og lýsti áhuga
sínum á því og fylgdi úr hlaði tillögum sínum um fyrir-
komulag og námsefni. Um þessa endurmenntun má lesa í
síðasta tölublaði. Formaður fagnaði því, að nú hefði fengist
fastur punktur í þessu mikilvæga máli, sem endurmenntun
er.
Hulda Jensdóttir gerði að umræðuefni réttarstöðu ljós-
mæðra, einkum varðandi störf við ungbarnaeftirlit, fjöl-
skylduáætlanir og foreldrafræðslu. Vakti hún athygli á því,
hve tæpt við stöndum í þessum málum, þar sem ýmsir
sérhópar í öðrum stéttum væru á góðri leið með að taka í
sínar hendur hin ýmsu störf af starfssviði ljósmæðra. Spurn-
ingin væri: Hver er staða Ljósmæðraskólans og hversu skýr
eru réttindi ljósmóðurinnar, þegar hún útskrifast þaðan.
Gróa Jónsdóttir ra^ddi réttindaleysi ljósmæðra til starfa
við ungbarnaeftirlit, þrátt fyrir þá staðreynd, að ljósmæður
önnuðust mjög víða þennan þátt heilsuverndar. Enda kom
fram hjá henni og fleirum í umræðum, að ljósmæður fengju
menntun í Ljósmæðraskólanum, sem ætti að öllu eðlilegu að
gefa þeim réttindi til þessara starfa.
Formaður las bréf frá Vilborgu Einarsdóttur, ljósmóður,
en hún hefur einnig hjúkrunarmenntun. Óskaði hún eftir að
verða fullgildur félagi í L.M.F.I., og fól hún félaginu að
semja fyrir sig um kaup og kjör, sem áður var í höndum
Hjúkrunarfélags íslands.
Formaður fagnaði þessu viðhorfi Vilborgar og taldi það
styrk fyrir félagið, sem mundi gera sitt ýtrasta til að vera
góður málsvari í kjarasamningum. Hulda Jensdóttir vakti
athygli á þeirri óheillaþróun fyrir stéttina, að ljósmæður
með aukna menntun hyrfu úr félaginu. Enda hefði þetta