Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 18
66
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Slíkt spor afturábak, sem við teljum lokun mæðraheim-
ilisins vera, stigið á barnaári, er nokkuð sem Bandalag
kvenna treystir að ekki komi til framkvæmda, en vonar að
takast megi að ná til þeirra sem þetta heimili gæti þjónað.
Steinunn Finnbogadóttir
Margrét Þórðardóttir
Guðný Helgadóttir
Fæðingarheimili Reykjavíkur
Þá flutti formaður L.M.F.f. svohljóðandi tillögu ásamt
greinargerð:
„Aðalfundur Bandalags kvenna í Reykjavík
haldinn dagana 25.— 26. febr. 1979, er
andvígur öllum hugmyndum um að leggja niður
Fæðingarheimili Reykjavíkur.”
Meðflutningsmenn voru fímm fulltrúar á fundinum.
Tillagan ásamt greinargerð var samþykkt samhljóða og að
hún skyldi send öllum borgarfulltrúum.
Bandalag kvenna gekkst fyrir fundi á Hótel Sögu þar sem
aðalumræðuefni var málefni barna, ræðumaður var Jón
Björnsson, sálfræðingur frá Akureyri. Fundinn sátu 5 fulltrú-
ar frá L.M.F.Í. Annan fund hélt Bandalag kvenna á Hótel
Loftleiðum í janúar 1979, og umræðuefni þar var „Matar-
æði skólabarna”. Þar voru flutt hin merkustu erindi, sem
voru sérprentuð og eintak afhent öllum aðildarfélögum
bandalagsins. Fundinn sátu fulltrúar félagsins.
Menntamálaráðuneytið gekkst fyrir fundi á Hótel Loft-
leiðum þann 11. október 1979. Þar var m.a. leitað eftir
hugmyndum frá hinum ýmsu félögum varðandi fram-
kvæmdir í tilefni af „Ári barnsins”. Formaður L.M.F.Í. sat
fundinn.
Aðalfundur Bandalags kvenna í Reykjavík haldinn
dagana 25. og 26. febrúar 1979 er andvígur öllum
hugmyndum um að leggja niður Fæðingarheimili Reykja-
víkur.