Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Side 19
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
67
Greinargerð:
Fæðingarheimilið var stofnsett árið 1960 af Reykjavík-
urborg að tilhlutan Bandalags kvenna í Reykjavík. Heim-
ilið leysti þá mikinn vanda, sem skapast hafði í borginni
vegna skorts á rými fyrir verðandi mæður, og má segja að
neyðarástand hafi ríkt í aðstöðu til fæðingarhjálpar.
Fæðingarheimilið bar ekki aðeins gæfu til þess að
tryggja ásamt Fæðingardeild Landspítalans öllum konum
pláss á fæðing^stofnun sem þess þurftu með, heldur var
stofnunin frumkvöðull með ýmsar nýjungar í fæðingar-
hjálp og mæðravernd. Ekki alls fyrir löngu var Fæðinga-
heimilið stækkað og þar bætt stórlega öll aðstaða til
fæðingarhjálpar og umönnunar kvenna í sængurlegunni.
Nú eru þar 30 rúm fyrir sængurkonur — þar af 4
fæðingarrúm. Síðastliðið ár voru þar 750 fæðingar, en á
fæðingadeild Landspítalans voru 1872 fæðingar.
Sérstök ástæða er til að geta þess, að dánartala ung-
barna hér á landi er ein hin lægsta í heiminum, ca 16% á
öllu landinu, en ca 3% á Fæðingarheimilinu eða þótt 1/3
þeirra kvenna er þar fæða séu frumbyrjur.
Á aðalfundi Bandalags kvenna í nóv. 1968 var einróma
samþykkt tillaga sem send var öllum alþingismönnum og
skorað á heilbrigðisyfirvöld að hefja án tafar undirbúning
að byggingu kvensjúkdómadeildar við Fæðingadeild
Landspítalans, þar sem skapast hafði hróplegt neyðar-
ástand í þeim efnum, þannig að konur með illkynja
kvensjúkdóma þurftu að bíða langan tíma eftir sjúkrahús-
dvöl eða aðgerðum. Þessari samþykkt var sterklega fylgt
eftir af kvennasamtökunum í landinu og hlutu þau
liðstyrk ýmissa góðra manna innan þings og utan. Nýja
kvensjúkdóma- og fæðingardeildin var formlega tekin í
notkun árið 1976 og er hún hin glæsilegasta stofnun, vel
búin og með vel menntað fólk til þjónustu. Gengir deildin
mikilvægu hlutverki sem slík, auk þess sem hún er
kennslustofnun.
Nú hafa mál þróast svo, að Fæðingardeildin er yfir-
keyrð á kostnað kvensjúkdómasjúklinga og bið kvenna
eftir plássi frá 6 mán. upp í ár, þurfí þær aðgerða með og
biðin er nú lengri en fyrr. Af þessu er ljóst að vandamálið