Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Qupperneq 21
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
69
sendi þessu félagi að gjöf litla mynd frá Þingvöllum eftir
Asgrím Jónsson. Á þessum sama stjórnarfundi hafði Hulda
Jensdóttir verið kjörin frá íslandi í stjórn norræna ljós-
mæðrasambandsins. En næsti fundur stjómarinnar verður
haldinn á fslandi, þ.e.a.s. vorið 1980.
Nú stendur fyrir dyrum Norðurlandamót ljósmæðra og
verður það haldið að þessu sinni í Osló dagana 13.—15. júní
n.k. Þar mæta tveir fulltrúar fyrir félagið, Hulda Jensdóttir,
sem er í stjórninni, og mun hún mæla fyrir hönd félagsins í
panelumræðum, sem fulltrúar Norðurlandanna taka þátt í,
1 frá hverju landi, og Kristín I. Tómasdóttir og flytur hún
skýrslu stjórnar. Þessir ágætu fulltrúar fara með fríðu
föruneyti, því aðrir þátttakendur eru 14 talsins. 2 ljósmæður
frá Akureyri, 3 frá Hafnarfirði, 2 frá Akranesi og 7 frá
Reykjavík.
Kjaramál
Kjaramálin hafa mikið verið til umfjöllunar. Það mun
samdómaálit þeirra er gerst þekkja, að L.M.F.Í. hafi eftir
ástæðum komið vel út í síðustu kjarasamningum, en þó að
samningar séu á sinn hátt skýnr, þá skapar það æði víða
vandamál í kjaramálunum, hvað ljósmæður eru víða með
sérsamninga og mjög afbrigðilega vinnuskyldu.
Með þetta í huga og fengna reynslu, þá sendi formaður
bréf til forráðamanna sjúkrahúsa heilsugæslustöðva og for-
mönnum bæjarstarfsmannafélaga dagsett 2. nóv. 1978 og
undirritað af formanni L.M.F.f. og fulltrúa B.S.R.B., Baldri
Kristjánssyni. Þetta bréf átti og virðist hafa í reynd stutt
ljósmæður mjög við að leita réttar síns í kjaramálunum á
fæðingarstofnunum út um land.
Bréf þessu viðvíkjandi birtist áður í blaðinu.
Þá hafa ljósmæður, sem vinna við hjúkrunarstörf á
Elliheimilinu Grund, skýrt stjórn félagsins frá því, að þær
telji túlkun félagsins og fulltrúa B.S.R.B. í bréfi dags.
02.11.78 um, að ljósmóðir sem vinni ein á vakt og þar af
leiðandi ein ábyrg fyrir ljósmóðurstörfum, að henni beri