Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 26
74
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
áskrifendafjöldi er raunar eina tryggingin, sem félagið hefir
til handa Prentsmiðjunni Odda, sem tekið hefir að sér að
prenta og fullgera stéttartalið. Utgáfutími er áætlaður
haustið 1979.
Samningarnir, sem tókust við prentsmiðjustjórann,
Baldur Eyþórsson, einkennast af sérstökum góðvilja og
áhuga hans fyrir því, að félaginu mætti takast sem best að
koma þessu ætlunarverki sínu í höfn með myndarbrag. Þessi
samningur við prentsmiðjuna Odda er staðfestur með bréfi
18. okt. ’ 78. Stjórn félagsins verður æði oft vör við vinarhug
til ljósmæðra, bæði í orðum og gjörðum, m.a. hafa félaginu
borist gjafir til styrktar stéttartalinu frá einstaklingum og
hópum, einnig frá Kvenfélagi Hrunamannahrepps (sjá
reikninga stéttartals).
í stuttu máli standa leikar nú svo, að ritsmíðar þeirra
Önnu Sigurðardóttur og Helgu Þórarinsdóttur eru tilbúnar
til prentunar, en lokaspretturinn er senn að nálgast við
úrvinnslu stéttartalsins sjálfs. Það hefir komið fram, að
Helga Þórarinsdóttir hefir skilað sínu verki ‘samkvæmt
samningi, en vegna aðkallandi verkefna við Ljósmæðratalið
og nauðsyn þess að leggja allan mögulegan þunga á að koma
verkinu til prentunar, þá varð Helga við þeirri beiðni, að
vinna í hlutastarfi með Björgu Einarsdóttur m.a. við mynda-
söfnun. Stjórn félagsins hugaði að sjálfsögðu að samningi og
greiðslu ritlauna til Önnu Sigurðardóttur fyrir ritsmíð
hennar, en í framhaldi af viðtali við hana þar um hefir
formanni borist bréf frá Önnu dags. 2. apríl 1979.
Bréf þessu viðvíkjandi birtist í 1. tbl. ’79.
Stjórn félagsins metur þetta mikils og vildi svo gjarnan að
ritið Ljósmæður á Islandi gæti orðið svo virðulegur vettvang-
ur sem ritsmíð Önnu Sigurðardóttur ber og að því mun
stjórnin heils hugar vinna og lætur ekkert til spara.
Ljósmæðraheimilið að Hverfisgötu 68a
Húsnæðið, sem félagið festi kaup á að Hverfisgötu 68a á
síðasta ári hefur sannarlega komið að góðum notum, lítillega
hefur verið unnið að endurbótum á húsnæðinu án mikils