Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Qupperneq 27
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
75
kostnaðar. Kaupverðið var kr. 4,5 milljónir, félagið sjálft
hefur þegar greitt 2,8 milljónir af kaupverðinu. Sótti stjórnin
um styrk til kaupanna úr Félagsheimilasjóði, sem er á
vegum menntamálaráðuneytisins og í ágústmánuði s.l. kom
staðfesting frá ráðuneytinu um, að Félagsheimilasjóður hefði
veitt L.M.F.Í. kr. 1.000.000.00 — einamilljónkróna —, úr
sjóðnum. Þessi fjárupphæð var veitt sem óafturkræft framlag
og greiðist þannig, að greiðslur mæta afborgunum af veð-
skuld að upphæð — einamilljónkróna —, sem greiðist á
fjórum árum með gjalddaga í september ár hvert.
Eftirstöðvar kaupverðs auk áðurnefndrar veðskuldar sem
sjóðurinn greiðir, eru kr. 700.000 — sjöhundruðþúsund —,
sem greiðist á 4 árum með gjalddaga 1. mars. Með þessar
niðurstöður í huga lítur stjórnin svo á, að þessum húsnæðis-
kaupum sé borgið.
Störf fjáröflunarnefndar
Efnt var til fjáröflunar með markaðssölu á Lækjartorgi 3.
nóvember s.l., þar var seldur ýmis varningur sem félagarnir
gáfu, m.a. kökur svo og margt fallegrar vöru, sem ljósmæð-
urnar höfðu bæði prjónað og saumað. Það var einkar
ánægjulegt hve margar ljósmæður lögðu sitt lóð á vogarskál-
ina. Fjáröflunin gekk mjög vel og skilaði kr. 220.000.00 í
hagnað. Ekki var staðar numið en hins vegar efnt til
markaðssölu öðru sinni 15. des. og byggð upp á líkan hátt og
sú fyrri — ágóði varð kr. 150.000.00.
Þessir peningar runnu að mestu til afborgana af eigninni
að Hverfisgötu 68a.
Gjöf frá stofnendasjóði
Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar
Gísli Sigurbjörnsson, forstjóri, sendi félaginu að gjöf kr.
250.000.00 f.h. Stofnendasjóðs Grundar. Þetta er í fjórða
sinn, sem hann sýnir félaginu virðingu og vinsemd með