Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Síða 29
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
77
stétt kvenna á Islandi í opinberu starfi. Stjórn L.M.F.Í.
mælist eindregið til þess við Póst- og símamálastofnunina,
að hún sýni ljósmæðrastéttinni þá virðingu nú á þessum
tímamótum, að gefa út frímerki í flokknum „Merkir
fslendingar”.
Það er ósk félagsins, að frímerkið beri mynd af hinni
merku ljósmóður, Þorbjörgu Sveinsdóttur. Hún var fædd
árið 1828, hlaut menntun sína erlendis og var ljósmóðir í
Reykjavík frá 1864 til dauðadags, en hún lést árið 1903.
Hún stofnaði Hið íslenska kvenfélag árið 1894 ásamt
Ólafíu Jóhannsdóttur. Á stefnuskrá félagsins var m.a.
stofnun háskóla hér á landi og aukin réttindi kvenna.
Þorbjörg lét sér fátt óviðkomandi — um hana segir
Klemenz Jónsson í „Sögu Reykjavíkur”. „Þorbjörg var
gáfukona mikil og skörungur, lét flest mál til sín taka,
landsstjórnarmál, bæjarmál, prestkostningar og fleira.
Gekk hún að öllum þessum málum með mikilli rögg og
dugnaði, hún var mælskukona mikil, var hún því áhrifa-
mikil alls staðar þar sem hún beitti sér.” Það er áhugamál
ljósmæðrastéttarinnar að minningu þessa rnerka íslendings,
Ijósmóðurinnar Þorbjargar Sveinsdóttur, verði á lofti haldið.
F.h. Ljósmæðrafélags Islands,
Steinunn Finnbogadóttir
Gjaldskrá ljósmæðra
Heildartala birtist í síðasta blaði, samningurinn birtur
síðar.
Umdæmisljósmæður ríkisstarfsmenn
Reykjavík, 20. apríl 1979
Fyrir hönd Ljósmæðrafélags íslands leyfi ég mér að fara
þess á leit við yður, herra fjármálaráðherra, að þér sjáið
svo um að umdæmisljósmæður verði í reynd rikisstarfsmenn,
og þannig verði bundinn endi á þann órétt og þá