Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Síða 31
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
79
Kveðja frá Jensínu Óladóttur,
Bœ,á 60 ára afmœli LMFÍ
Ljósmæðrafélag íslands
f tilefni 60 ára afmælis Ljósmæðrafélagsins sendi ég ykkur
félags- og starfssystrum mínum og félaginu mínar innileg-
ustu hamingjuóskir og árnaðarkveðju. Megi farsæld og
guðsblessun fylgja störfum ykkar um alla framtíð.
Þar sem mér hefur verið tilkynnt, að þið hafið ákveðið að
gera mig að heiðursfélaga Ljósmæðrafélagsins, þakka ég
ykkur með hrærðu hjarta þann óverðskuldaða heiður, sem
þið í því sýnið mér.
Starf mitt sem ljósmóðir er nú orðið lítið og nánast ekki
annað en nafnið. — Langt er nú orðið síðan ég tók á móti
barni. Allar konur fara nú að heiman til fæðinga sjálfum sér
og börnum sínum til frekara öryggis. Því mæðir lítið á mér í
þeim efnum. Enda er ég ekki nú orðin til stórræða eða
ferðalaga við erfiðar aðstæður. Þar sem engum öðrum er til
að dreifa er starf mitt bundið við athugun á vanfærum
konum og þá ráðleggingar í sambandi við það.
Þó kom fyrir það atvik í sambandi við fæðandi konu, nú
nýlega, þar sem ég held að nærvera mín og tilvera hafi
stuðlað að farsælli lausn fyrir konu og barn. — Á ég þar við
það er ung frumbyrja var sótt hingað norður af þyrlu
Varnarliðsins þann 20. þ.m. — Allar aðrar samgönguleiðir
voru útilokaðar og ekki hægt að ná til læknis nema gegnum
síma. — Ef mín hefði þá ekki notið við með mína litlu
þekkingu á því að hverju fór, er ósagt hvernig því hefði reitt
af. Stúlkan var komin til mín og beið ferðar með flugi, sem
brást vegna veðurs og að flugvöllurinn var ekki lendingar-
fær. Mér finnst ég geti þakkað forsjóninni, sem ávallt hefur
verið mér hliðholl undir slíkum kringumstæðum, og mér
sem verkfæri hennar, fyrir hvað giftusamlega það tókst. Fyrir
það er ég innilega þakklát og glöð. — Á sama hátt er ég