Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Síða 32

Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Síða 32
80 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ innilega þakklát forsjón guðs fyrir það lán, sem fylgdi mér í Ijósmóðurstarfi mínu, meðan það var og hét. Með kærri kveðju til ykkar allra og hjartans þökk fyrir mér auðsýndan sóma. Blessun guðs fylgi ykkur í öllum störfum ykkar um alla framtíð. Bæ, 27/4 1979 Ykkar starfssystir Jensina Óladóttir Mynd af Ijósmóður ó nýju frímerki Svarbréf frá Póst- og símamálastofnuninni sent formanni. Póst- og símamálastofnunin þakkar fyrir bréf yðar dags. 20. mars sl. þar sem vakin er athygli á 60 ára afmæli Ljósmæðrafélagsins og lagt til, að gefið verði út frímerki í flokknum „Merkir íslendingar”, er beri mynd Þorbjargar Sveinsdóttur. I því sambandi skal upplýst, að ákveðið hefur verið að vinna að útgáfu slíks frímerkis og væri póst- og símamála- stofnunin þakklát fyrir að mega eiga við yður samstarf um val mynda. J. Skúlason.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.