Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Síða 34
82
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Félagsfréttir
Að norðan
30. júní var deildafundur á Akureyri haldinn af Norður-
landsdeild og Austurlandsdeild. Fundinn sóttu ljósmæður
víðs vegar af norður- og austurlandi. Formenn deildanna,
Margrét Þórhallsdóttir, Akureyri og Guðlaug Sveinsdóttir,
Egilsstöðum, höfðu framsögu, en fundarefni var starfssvið
ljósmæðra og kjaramál.
Samkvæmt ósk komu á fundinn Steinunn Finnbogadóttir,
formaður L.M.F.I. og Baldur Kristjánsson, fulltrúi hjá
B.S.R.B. Umræður urðu miklar og ýmiss fróðleikur kom
fram. Formaður tók þátt í umræðum og þakkaði formönn-
um deildanna þetta framtak. Fundurinn var vel undirbúinn
og vel sóttur.
Fréttatilkynning frá Suðurnesjadeild 2/10 1979.
t
Suðurnesjadeild Ljósmæðrafélags Islands hélt aðalfund
sinn 27/9 ’79, í Tjarnarlundi í Keflavík. Eins og hefur komið
fram í fjölmiðlum er tilgangur deildarinnar
a) að gæta hagsmuna ljósmæðra í hvívetna og efla sam-
heldni og stéttartilfinningu.
b) að glæða áhuga ljósmæðra fyrir öllu því, er að starfi
þeirra lýtur.
c) að stuðla að bættri mæðravernd og fæðingarhjálp á
Suðurnesjum.
Deildin hefur haldið tvö fræðsluerindi á árinu. Prófessor
Sigurður S. Magnússon flutti erindi um geðræna hlið
meðgöngu og Guðmundur Jórmundsson barnalæknir flutti
erindi um sýkingar og öndunarörðugleika nýbura. Þá hefur
deildin leitað eftir samstarfi við stjórn Heilsugæslustöðvar