Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Síða 37
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
85
Að loknu máli sínu, sótti Eva Einarsdóttir um að gerast
fullgildur félagi í Ljósmæðrafélagi íslands, og að félagið sæi
um að semja um laun sín sem kennara við Ljósmæðraskóla
Islands.
Til máls tóku Hulda Tensdóttir, María Björnsdóttir og
Ragnheiður Ólafsdóttir. \ málflutningi þeirra kom fram, að
með námsskrá þessari, sem Eva kynnti, væri mikil hætta á
að hjúkrunarfræðingar frá Háskóla Islands, yfirtækju með
tímanum sum störf ljósmæðra, einkum á heilsugæslustöðv-
um, við mæðraskoðun og foreldrafræðslu.
Eftir nokkrar umræður um málefnið, gerði formaður að
tillögu sinni að fela Evu Einarsdóttur og Mattheu Ólafsdótt-
ur að ganga á fund prófessors Sigurðar Magnússonar
skólastjóra Ljósmæðraskólans og ræða við hann um náms-
skrána og kynna sér hvað fyrirhugað er með námsefninu.
Mun stjórnin síðar ræða þetta mál þegar fyrir lægju
nánari upplýsingar og fylgja málinu eftir við rétta aðila en
fyrir liggur, að ljósmæður einar hafa réttindi til mæðraskoð-
unar.
Sólveig Þórðardóttir, formaður Suðurlandsdeildar, sagði
frá aðalfundi í deildinni, ályktunum og fréttatilkynningu,
sem fundurinn samþykkti.
Alyktun aðalfundar Suðurnesjadeildar
Ljósmœðrafélags tslands, 27/9 ’79.
Beindi hann þeim tilmælum til Ljósmæðrafélagsins að
það hlutist til um að fjölskylduáætlun verði verksvið
ljósmæðra hér á landi, eins og alþjóðasamþykkt ljós-
mæðra segir til um. Telur fundurinn nauðsyn á nám-
skeiðahaldi fyrir þær ljósmæður, sem ekki hafa notið
kennslu þar að lútandi, þá telur hann það fagnaðarefni,
að Ljósmæðraskólinn skuli nú útskrifa ljósmæður, sem
hafi fengið kennslu í þessari grein. Þó telur hann nauðsyn
á að hún veri efld frá því sem nú er.
Fundurinn bendir á að ungbarnaeftirlit er starfssvið
ljósmæðra, samkvæmt alþjóðasamþykktinni, en sé orðið
starfssvið hjúkrunarfræðinga.
Að lokum þakkaði formaður ljósmæðrunum góða fundar-
setu og umræður um mikilvægt málefni stéttarinnar.
Var síðan fundi slitið.
Sigurbjörg Guðmundsdótlir, fundarritari.