Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Síða 39

Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Síða 39
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 87 Rœða próf. Sigurðar S. Magnússonar við útskrift úr Ljósmœðraskóla íslands haustið 1979 Kæru verðandi ljósmæður og aðrir góðir gestir, Mér er það sönn ánægja að ávarpa ykkur, ungu ljós- mæður, á þessum merku tímamótum í lífi ykkar. Enn einu sinni útskrifast glæsilegur hópur úr Ljósmæðraskólanum og bætist við hina virðulegu ljósmæðrastétt okkar lands. Við kennarar ykkar og aðrir þeir, sem hafa á einhvern hátt stuðlað að menntun ykkar gleðjumst yfir því að þið hafið náð þessu takmarki. Undanfarin ár hefur námsefni skólans verið þyngt að mun vegna þeirrar öru framþróunar, sem orðið hefur í fæðingafræðinni, bæði hvar snertir skilning okkar á þeim líffræðilegu og lífeðlisfræðilegu þáttum, sem meðganga og fæðing byggjast á, og hvað snertir þá tækni- væðingu, sem við nú ráðum yfir okkur til hjálpar. Það hafa verið gerðar til ykkar miklar kröfur og það hefur valdið okkur talsverðum áhyggjum, hvort þið mynduð ráða við þau verkefni, sem ykkur voru ætluð á þessari of stuttu skóla- göngu. Enginn vafi er á því, að það þarf að lengja og breyta skólagöngunni til þess að uppfylla kröfur nútímans. En þið hafið allar staðið ykkur vel, lagt hart að ykkur, og ég efast ekki um, að þið verðir allar verðugir fulltrúar ykkar stórkost- legu stéttar. Sitjandi frá vinstri: Eva Einarsdóttir, Guömundur Jóhannesson, Kristin Tómasdóttir og Sigurður I. Magnússon. Neðri röð standandi frá vinstri: Ingibjörg Huld Guðmundsdóttir, Drífa Björnsdóttir, Anna Dóra Sigurhansdóttir, Ólafía Guðmundsdóttir, Unnur Dóra Kristjáns- dóttir, Hulda Skúladóttir, Kristín Gunnarsdóttir og Björk Tryggvadótt- ir. Efri röð frá vinstri: Jóhanna Hauksdóttir, Jana Reynisdóttir, Solvej Diirke Hansen, Hildur Kristjánsdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir, María Jóna Hreinsdóttir, Lára Dóra Oddsdóttir og Lilja Skarphéðins- dóttir.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.