Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Page 46
94
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Fósturlát.
Fósturlát snemma á meðgöngu, stafa oftast af göllum á fóstri eða fylgjuvef, en
seint á meðgöngu af sjúkdómum móður.
Utanlegsfóstur.
Ef kona hefur fengið utanlegsfóstur einu sinni er aukin hætta á því aftur. Einnig
er nauðsynlegt að greina þetta snemma til að það valdi móðurinni sem minnstum
skaða.
Mola- hydatidosa (Blöðrufóstur)
Aukin tíðni er á molu (blöðrufóstur), ef þetta fyrirbrigði hefur einu sinni komið
upp. Best er að greina fietta sem fyrst, til að það valdi móðurinni sem minnstum
skaða.
Sonar er öruggastur til greiningar molu.
Áðurfœtt barn með litningagalla.
Bendir á nauðsyn þessa að greina arfgerð fósturs í móðurkviði.
Á ðurfœtt vanskapað barn.
Getur bent á dulda sykursýki hjá móður. Einnig getur ófullnægjandi nýrnastarf-
semi fósturs leitt af sér oligohydramnion sem síðan leiðir ai sér vanskapað fóstur,
vegna skertrar hreyfigetu. Nauðsynlegt er því að fylgjast vel með líðan fósturs,
legvatnsmagni, svo og líðan móður.
Á ðurfœtt barn með vatnshófuð.
Hægt er að greina þetta ástand með röntgenmynd og með sonar. Aukin tíðni, ef
þetta hefureinu sinni komið upp.
Áðurfœlt barn með anecephalus.
Aukin tíðni er á þessu afbrigði, ef það hefur einu sinni komið upp, hasgt að
greina í legvatni. Leiðir oft af sér hydramnion.
Á ður fœtt barn með spina bifida.
Aukin tíðni, ef kona hefur áður fætt barn með þennan galla, hsegt að greina í
legvatni ef hryggur er opinn. Leiðir oft af sér hydramnion.
Hydramnion (Mikið legvatn).
Getur bent á dulda sykursýki hjá móður. Einnig fylgir það oft einhverjum
vansköpunum hjá fóstri.
Oligohydramnion (Li'tið legvatn).
Legvatnið er spegilmynd af starfsemi placentu (fylgju), á fyrri hluta meðgöngu,
en spegilmynd af starfsemi nýma á seinni hluta meðgöngu. Oligohydramnion er
þvi afleiðing, annað hvort lélegrar starfsemi fylgju og belgja, eða ófullnægjandi