Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Page 48
96
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Erfiðarfœðingar.
Mjög erfiðar og langdregnar fæðingar, sem endað hafa með sogklukku eða töng,
geta bent á misræmi milli fósturs og grindar eða of litla grind. Einnig getur einhver
önnur fyrirstaða hafa valdið þessu, sjá afbrigðilegar stöður.
Fyrirsœt fylgja.
Meiri tíðni er á fvrirsætri fylgju hjá konum, sem fengið hafa fyrirsæta fylgju áður.
Getur leitt af sér afbrigðilega stöðu.
Ónauðsynlegt er að greina það áður en konan er komin í fæðingu t.d. með sonar,
eða röntgenmynd.
Á ðurfœtt tvíbura.
Talið vera að einhverju leyti ættgengt.
Leg- og kviðveggur togna mikið á tvíburameðgöngu. Það getur síðar orsakað
afbrigðilegar stöður og einnig dystocia uteri.
Föst fylgja áður.
Léleg starfsemi legs er oftast orsök fastrar fylgju, eða inertia uteri. Athuga þarf
þetta í fæðingu.
R h esus-ósamrœm i.
Ef ósamræmi er í rhesus-blóðflokkum foreldra, þ.e. að móðir sé Rh—, og faðir
Rh+, þarf að fylgjast vel með mótefnamyndun í blóði móðurá meðgöngu.
Fyrirburðarfœðingar.
Athuga þarf vel, hvort einhver orsök var fyrir fæðingu fyrir tímann, svo sem
sykursýki hjá móður, pre-oclampsia, cervix insufficiens o.fl.
Gangsetning fœðingar.
Hver var ábending fyrir gangsetningu. Var það postmaturitas sjúkdómar hjá
móður, hættuástand hjá fóstri eða eitthvað annað.
Placenta insufficiens (Fylgjuþurrð).
Var orsök fylgjuþurrðar hypertensio, pre-eclampsia, nýrnasjúkdómar, æðasjúk-
dómar eða sykursýki hjá móður? Eða fannst einhver önnur orsök fyrir fylgjuþurrð?
Cervix insufficiens. (Slappur legháls).
Fylgjast þarf vel með þeim konum á meðgöngu, því þeim er mjög hætt að missa
fóstur, er fer að líða á meðgönguna. Það getur þurft að setja upp cerclage saum í
cervix.
Abortus provocaius. (Fóstureyðing).
Fóstureyðing áður, getur orsakað cervix insufficiens síðar meir, vegna útvíkkunar
leghálsins.