Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Side 49
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
97
Tiðasaga.
Tekur yfir upphafsdag síðustu tíða, tíðamynstur, hvort þær voru eðlilegar eða
óeðlilegar og hvort þær hafi áður verið reglulegar. Einnig hvort konan hafi tekið
pilluna nýlega, það getur seinkað egglosi. Athuga þarf hvort konan er með lykkjuna
uppi.
Nauðsynlegt er að konur skrái hjá sér dagsetningu tíða, vegna tímasetningar
meðgöngu.
Skoðun viðfyrstu komu.
Það er mjög áríðandi að ákvarða lengd meðgöngueins nákvæmlega og unnt er við
fyrstu komu, til þess að hægt sé að reikna út hvenær konan væntir sin af nákvæmni.
Eftir 42. viku eykst burðarmálsdauði og á því að gera ráðstáfanir til gangsetningar
fæðingar við 42. vikna meðgöngu, jafnvel þó allt sé eðlilegt að öðru leyti.
I mörgum tilfellum þarf að framkalla fæðingu fyrir tímann, svo sem við ýmsa
sjúkdóma á meðgöngu, t.d. pre-eclampsia, rhesus-ósamræmi, krónískir sjúkdómar i
hjarta og lungum, sykursýki o.fl. Sé vitað með vissu um meðgöngulengd í þessum
dlfellum, verður lítil hætta á gangsetningu of seint eða of snemma, en hvort tveggja
er stórhættulegt fyrir barnið.
Akvörðun á tímalengd meðgöngu byggirá:
L Dagsetningu síðustu tiða.
2. Kliniskri skoðun.
3. Dagsetningu fyrstu fósturhreyfinga.
Klinisk skoðun er langöruggust á 1. trimestri (1.—12. vika).
Nauðsynlegt er að biðja konurnar að skrifa hjá sér dagsetningu fyrstu fóstur-
hreyfinga, ef þær hafa ekki fundið þær fyrir fyrstu skoðun. Algengast er að
frumbyrjur finni fyrstu fósturhreyfingar við 18.— 20. vikna meðgöngu, en fjölbyijur
við 16.— 18. vikna meðgöngu.
Meðganga er talin vera 40 ± 2 vikur.
A Imenn heilsufarsskoðun.
Mæla hæð konunnar og þyngd hennar. Allar konur undir 160 cm á hæð eru
sendar í grindarmælingu á seinustu vikum meðgöngir.
Spyrjast þarf fyrir um þyngd konu fyrir meðgöngu og upplýsa hana um hversu
rciikið hún á að þyngjast og að óæskilegt sé að hún megri sig á meðgöngu. Það getur
skaðað bæði hana og barnið.
Konan á að þyngjast um 10— 12 kg á meðgöngu. Hún á að auka fitumassa sinn
um 4 kg., þ.e. orkuforði fyrir fæðingu og brjóstagjöf. Holdugar konur þurfa ekki að
auka fituforða sinn, og því þurfa þær ekki að þyngjast um nema 6—8 kg. Offita
veldur oft erfiðleikum í fæðingu. Nauðsynlegt er að fræða konuna vel um þetta.