Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 50
98
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Læknir hlustar hjarta og lundu konu. Einnig athugar hann hvort konan hafi
bjúg á fótum, höndum eða í andliti. Bjúgur getur bent á byrjandi pre-eclampsiu.
Blóðþrýstingur er mældur hjá konunni liggjandi. Ef hann er 140/90 eða meiri,er
konan látin hvíla sig og blóðþrýstingur síðan mælduraftur.
Ytri skoðun.
Hæð legbotns er mæld frá efri brún synphysis. Mælt er ummál kviðar. Einnig er
hlustað eftir fósturhljóðum eftir 20. viku.
Innn þreifing.
Athugað er hvort stærð legs svari til dagsetningu síðustu tíða, hvernig portio lítur
út og hvort cervix sé eðlilega langur og lokaður. Athugað er hvort náist upp í
promontorium, þ.e. hvort grindin virðist eðlilega stór.
Blóðrannsóknir.
Nauðsynlegt er að vita blóðflokk konunnar, sérstaklega rhesus-flokk. Ef engin
blóðflokkun hefur átt sér stað, eða er eldri en 10 ára, við fyrstu skoðun og sent til
blóðflokkunar. Einnig er rannsakað fyrir mótefni gegn rauðum hundum, hae-
moglobinmagni blóðs og hæmatocrit ef konan er blóðflokkuð.
Á göngudeild Landspítalans eru konur yfirleitt settar strax á járn og vítamín, þó
blóð sé eðlilegt. Þetta eru fyrirbyggjandi aðgerðir, vegna þess að fylgjan og fóstrið
taka til sín járn og einnig missir konan blóð í fæðingunni.
Heildarblóðmagn vanfærrar konu eykst vegna aukinnar súrefnisþarfar, svo og
stækkunar á æðabeði líkamans. Blóðvökvi eykst um 40—50%, en rauð blóðkorn
aðeins um 25%. hæmoglobin lækkar því eðlilega á meðgöngu, þó heildarmagn
aukist í líkamanum. Hæmatocrit laskkar um u.þ.b. 15% á meðgöngu. MGHC
breytist ekki.
Einnig er blóðið rannsakað fyrir lues-sýkingu og mótefni fyrir rauðum hundum.
Sýking af rauðum hundum á fyrstu mánuðum meðgöngu veldur fósturskemmd-
um. Fylgjast verður með mótefnahaskkun í blóði vanfærra kvenna, sem ekki hafa
næg mótefni fyriref grunurer um nýja sýkingu.
Lues veldur sýkingu á fóstrinu eða intra-uterin dauða, en bakterían kemst ekki
yfir fylgjuna fyrr en eftir 20. viku. Hægt er að koma í veg fyrir sýkingu á fóstri með
lyfjagjöf á meðgöngu.
Blóðsýni er tekið ef spurning er um sýkingu af völdum herpæs simplex,
cytomegalovirus, toxoplasmosis og listeriu.
Þvagrannsóknir.
Fengið er þvag til almennrar þvagskoðunar og rannsakað fyrir eggjahvítuefni og
sykri í þvaginu. Við nasstu komu er tekið þvag til sýklarannsóknar (Uricult) og fá
konurnar leiðbeiningar þar að lútandi. Talið er að 6% vanfærra kvenna fái
einkennalausa sýklamigu. Sé ekkert að gert, fá 25% af þessum konum bráða
nýrnaskálabólgu. (pyelonephritis acuta) síðar á meðgöngu eða í sængurlegu. Fái
konan viðunandi meðferðer talan 2,6%.