Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Síða 52
100
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Blóðrannsóknir.
Tekið er blóð hjá konunni 3—5 sinnum á meðgöngu og mælt hæmoglobinmagn
blóðs. Ef hæmoglobinmagn fer niður fyrir 10mg%, þá þarf að athuga hvort konan
taki ekki járn, eða hvort þetta sé einhver annar skortur, svo sem á folínsýru eða
Bi2-vítamíni.
Anæmia getur leitt til komplikationa í og eftir fæðingu, bæði fyrir konu og barn
hennar.
Rannsakað er fyrir mótefnamyndun í blóði hjá Rh—-konum. Sent er blóð frá
þeim í screen-test, þrisvará meðgöngutímanum.
1. próf á 24.— 26. viku meðgöngu.
2. próf á 32.— 34. viku meðgöngu.
3. próf á 36.— 38. viku meðgöngu.
Hjá immuniseruðum konum, þar sem titer fer haskkandi eru prófin gerð þéttar,
og einnig gerð legvatnsástunga fyrirOptical density mælingu = bilirubinmælingu
í legvatni, til að meta ástand fósturs.
En Rhesus sjúkdómum hefur faskkað mjög mikið á síðari árum, eftir að
Rhesusvarnir byrjuðu hér á landi en það var í desember 1969.
Einnig er blóð rannsakað fyrir storknuhasfni hjá konum með blæðingar og
storkutruflanir.
Þvagrannsóknir.
Við hverja skoðun er tekið þvagsýni. Þvagið er rannsakað fyrir eggjahvítu og
sykri.
Ef eggjahvíta finnst í þvagi (albuminuria), á konan að koma næsta morgun og
hún beðin um að kasta ekki af sér þvagi í 3 klst. fyrir komu. Henni er leiðbeint um
töku miðbunuþvags og það síðan sent í RNT (ræktun, næmispróf og talning).
Þvagfærasýking er algengasta orsök proteinuriu á meðgöngu, en eggjahvíta
(protein) getur einnig verið frá vagina.
Konan er síðan sett á lyfjameðferð, samkvæmt niðurstöðum RNT. Athuga skal,
að ekki má nota Bactrim, Septrim, tetracyclin og nýrna- og heyrnartoxisk lyf á
meðgöngu. Tveim vikum eftir að meðferð er lokið er gerð Uricult-rannsókn.
Ef sykur finnst í þvagi (glucosuria)^ er langalgengasta orsökin nokkurs konar
sykurlegi um nýru (renal glucosuria). Þetta kemur fyrir hjá u.þ.b. 10% vanfærra
kvenna. Til að forðast truflun á sykurprófi í þvagi, eru konur beðnar að forðast
sætan mat og drykk í 4 klst. fyrir skoðun.
Komi fram sykur í þvagi hjá konu tvívegis í röð, ber að gera sykurþolspróf hjá
henni.
/
Aðrar rannsóknir á meðgöngu.
Sykurþolspróf.
Ábendingar
1. Glucosuria tvisvareða oftará meðgöngu.
2. Hjá konum, sem hafa mörg fósturlát að baki.