Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Page 56
104
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Bishop score.
Þegar framkalla þarf fæðingu hefur ástand legháls mjög mikið að segja, hvort
tekst að koma fæðingu af stað eður ei. Við vaginalskoðun mælir Bishop score ástand
legháls, þ.e.
Dilation — útvíkkun
Effacement — Lengd legháls
Gonsistency — Mýkt legháls
Station — Staða legháls
Position — Framgang fyrirsæts fósturhluta.
Gefin eru stig fyrir leghálshæfnina.
Ófullnasgjandi 0—5
Sæmileg 5—7
Góð 7—9
Ágætt 9—13
Hefur þessi rannsókn komið að góðum notum og minnkað það álag, sem konan
og barnið verður fyrir við ótímabæra framköllun fæðingar.
Áhættuhópar á meðgöngutima.
Þessum konum þarf að fylgjast sérstaklega vel með yfir meðgöngutímann.
1. Konur, sem ganga með fleiri en eitt barn. Þessar konur eru lagðar inn á
meðgöngudeild til eftirlits upp úr 30. viku.
2. Konur með sykursýki. Þær eru lagðar inn til eftirlits á meðgöngudeild upp úr
30. viku. e.t.v. fyrr ef erfitt er að stapilisera sjúkdóminn.
3. Konur með háþrýsting.
4. Konur með nýrnasjúkdóma. Eru lagðar inn á síðasta hluta meðgöngu til
eftirlits.
5. Konur með hjarta- og æðasjúkdóma. Eru lagðar inn til eftirlits á síðasta hluta
meðgöngu.
6. Konur með lungnasjúkdóma.
7. Konur með cervix-insufficiens. Oftast er settur upp cerclage-saumur, sem síðan
er tekinn á síðustu vikum meðgöngutíma.
8. Konur með langvarandi ófrjósemivandamál.
9. Konur, með aðra sjúkdóma.
10. Rhesus-neikvæðar konur.
Einnig þarf að fylgjast vel með konum sem fá pre-eclampsiu á meðgöngu og eru
þær lagðar inn á meðgöngudeild, er þær eru komnar með tvö einkenni meðgöngu-
eitrunar.
Einnig eru konur með hyperemesis lagðar inn á meðgöngudeild jafnskjótt og
sjúkdómurinn uppgötvast.