Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 58
106
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Gott er að ráðleggja þeim að fara i slökun — leikfimi á meðgöngutímanum.
Greiða ber úr vandamálum vanfærra kvenna á meðgöngu eftir bestu getu og
undirbúa þær undir fæðinguna.
Gjörgæsla í fæðingu:
Við fæðingarhjálp skal síðan viðhafa gjörgæslu hjá öllum fæðandi konum með
sérmenntuðu starfsfólki, auk þess að taka i notkun sem mest þau nýju hjálpartæki
(Monatora) sem sannað hafa ágæti sitt, til að fylgjast sem best með liðan bamsins
meðan á fæðingunni stendur, en með Monatorum er hasgt að fylgjast náið með
hjartslætti barnsins, þannig sést strax ef breyting verður á hjartslætti barnsins, og
er þá hægt að gera viðeigandi ráðstafanir sem fyrst ef með þarf.
Einnig er hægt að fylgjast með hríðum konunnar, styrk þeirra, lengd og tiðni.
Nú þykir ekki framar neinn vafi leika á þvi, að eftirlit með vanfærum konum
hefur áhrif á sjúkdóma meðgöngunnar og dánartölu kvenna af þeirra völdum, sem
og á velferð fóstursins i móðurkviði á meðgöngu, og fæðingu heilbrigðs einstaklings.
HEIMILDIR:
1. Propedeutist obstetrik eftir Knut Bjoro og Káre Molne.
2. Obstetrics illustrated eftir Garrey/Govan/Hodge/Callender.
3. Obstetrik/Gyntekologi eftirj. Falck Larssen,0. Asbjorn ogTove Schmidt.
4. Gerð mæðraskrár eftir Sigurð S. Magnússon prófessor.
5. Meðgöngueitrun eftir Sigurð S. Magnússon prófessor.
6. Bæklingur er þýddur var úr þýskri ljósmæðrafræði.
7. Glósur úr ýmsum fyrirlestrum í Ljósmæðraskóla íslands.
8. Antenatal care eftir J.C. McClure Browne og Geoffrey Dixon.
9. Fósturvernd, grein eftir Jón Hannesson, lækni.
10. Fyfirmæli um OCT-próf eftir Sigurð S. Magnússon prófessor.
11. Grein um Lecithin/sphingomyeline hlutfall í legvatni eftir Gunnar Biering
barnalækni.
12. Grein um mataræði vanfærra kvenna, eftir Auðólf Gunnarsson lækni, Helgu
Hreinsdóttur manneldisfræðing og prófessor Sigurð S. Magnússon.