Ljósmæðrablaðið - 01.04.1980, Qupperneq 7
LJOSMÆÐRABLAÐIÐ
7
60% barna eru velkomin.
16% af tilfellunum er konan ekki viss.
17% barna eru ekki velkomin.
6% eru börnin algjörlega óvelkomin.
Á þessum tölum sést að foreldrar eru mjög misjafnlega búnir
undir það líkamlega og andlega álag, sem fylgir meðgöngu og því
að eiga barn.
Um ákveðinn hóp kvenna er hægt að tala um sem „félagslegan
áhættuhóp”. Það eru t.d. mjög ungar mæður, konur með erfið
heimili, veikar konur og bæklaðar, sem ekki geta unnið. Þessum
konum og öðrum sem þurfa á félagslegri aðstoð að halda er ráð-
lagt að tala við félagsráðgjafa og fræðast um réttindi og trygg-
ingabætur. Konur sem forfallast frá vinnu vegna barnsburðar og
uppfylla eftirfarandi skilyrði eiga rétt á atvinnuleysisbótum í
fæðingarorlofi.
A: Eru fullra sextán ára og eru fullgildir félagsmenn í verka-
lýðsfélögum.
B: Hafa unnið a.m.k. 1032 dagvinnustundir við störf sem
tryggingarskyld eru samkvæmt lögum um atvinnuleysistrygging-
ar, eða 516 dagvinnustundir sé um reglubundna hálfsdagsvinnu
að ræða, enda hafi vinna verið greidd samkvæmt kjarasamningi
eða taxta verkalýðsfélags.
Meðlög og bætur til ekkna, ekkla og einstæðra foreldra er skylt
að greiða og er vísað i upplýsingabækling sem Tryggingarstofnun
ríkisins gefur út.
En hvers vegna viljum við eiga börn? Fyrir því liggja margar
ástæður og er það einstaklingsbundið hvort vilji er fyrir hendi þar
að lútandi eða ekki. Þó er það staðreynd að flestir finna þá þörf i
lífinu að geta af sér afkvæmi m.a. til að sanna getu sína, að karl-
maðrinn sé sannur karlmaður og að konan sé kona og móðir.
Þjóðfélagslegur og félagslegur þrýstingur skiptir miklu máli,
krafa umhverfisins um að vera fullkomin fjölskylda. Samband
hjóna eða einstaklinga er oft ekki fullkomið fyrr en við barns-
burð. Enn einn þátt má nefna sem er töluvert algengur og um leið
mjög neikvæður og óæskilegur. Þ.e. ef fólk ætlar sér að leysa
sambýlisvandamál með því að eignast barn. Einstaklingar sem
ekki hafa áhuga á að eignast börn, hafa oft blandaðar tilfinningar
gagnvart þeirri ábyrgð og fórnum sem barnauppeldi fylgir.