Ljósmæðrablaðið - 01.04.1980, Page 9
LJOSMÆÐRABLAÐIÐ
9
hræðsla og ótti við það óþekkta. Konur eru mjög auðtrúa á þessu
tímabili t.d. fyrir öllum hrakfallasögum um slæmar meðgöngur
og fæðingar. Gott er að tala um það við konuna að flestar
fæðingar ganga vel og engin ein er eins.
Fæðingin
Fæðingin er hápunkturinn, viðbrögð konunnar í fæðingu á sér
djúpar rætur sem oft endurspeglar ástand sálarinnar.
Hvernig konan upplifir sársaukann er undir henni sjálfri
komið, hvort hún er jákvæð eða neikvæð. Ómetanlegt er, ef gott
samband næst á milli konunnar og starfsfólks og aldrei ætti að
skilja konu eftir eina í fæðingu.
Tilgangur mæðraskoóunar, leikfimi og slökunar
Tilgangur mæðraskoðunar er:
ífyrsta lagi, að fyrirbyggja, greina eða meðhöndla óeðlilegt
ástand í meðgöngunni.
í öðru lagi, að finna út og fylgjast með konum í vissum
áhættuhópum í meðgöngu og í fæðingu.
/þriðja lagi, að ráðleggja ófrískum konum um mataræði
og lífsvenjur á meðgöngunni, og fræða þær um rétt þeirra í
sambandi við félagslega hjálp.
Þegar konan kemur í fyrstu skoðun er útbúin fyrir hana
mæðraskrá og skal hún útfyllt eins ýtarlega og unnt er.
Það sem helst ber að leggja áherslu á er:
1. Fyrri meðgöngur, gang fyrri fæðinga, fósturlát og langvar-
andi ófrjósemi.
2. Sjúkdóma, sem sérstaka þýðingu hafa á meðgöngunni t.d.
sykursýki, háþrýsting, hjarta-, lungna- eða nýrnasjúkdóma.
3. Fyrsta dag síðustu tíða eða s.t. og hvort þær hafi verið reglu-
legar eða óreglulegar. Mikilvægt er að ráðleggja konunni að
skrifa hjá sér þegar hún finnur l'yrstu hrevfingar fóstursins.
Þegar konan kemur i fyrstu skoðun á Ciöngudeild er fram-
kvæmd almenn skoðun s.s. lungna- og hjartahlustun. Konan fær