Ljósmæðrablaðið - 01.04.1980, Qupperneq 10
10
LJOSMÆÐRABLAÐIÐ
upplýsingar um alla almenna umhirðu, hreinlæti, tannhirðu,
hreyfingu, mataræði og fleira. Gott er að tala um umhirðu brjóst-
anna á meðgöngu sem fyrst, s.s. hvenær konan má búast við að
fari að leka úr þeim og hvenær hún á að byrja undirbúning geir-
vartanna. Einnig að útskýra mikilvægi brjóstagjafar fyrir bæði
móður og barn. Konan kemur í skoðun til að byrja með á mán-
aðarfresti, en smám saman styttist tíminn á milli og að lokum
kemur konan vikulega.
í hverri mæðraskoðun er konan vigtuð og blóðþrýstingur
mældur. Kviður er þreifaður, ummál mælt og einnig hæð leg-
botns. Eftir 20. viku er hlustað eftir fósturhljóðum. Utan þessara
venjulegu skoðana eru ýmsar sérrannsóknir gerðar þ. á m. blóð-
og þvagrannsóknir. Konan fær tækifæri til að spyrja og fræðast
og fá lausn á ýmsum sérvandamálum, sem upp kunna að koma í
sambandi við meðgönguna.
Á seinni árum hefur konum í meðgöngu gefist kostur á svo-
kölluðum slökunarnámskeiðum, sem byggast á fræðslu um getn-
aðinn og þróun fóstursins í gegnum meðgönguna.
Konan er búin undir fæðinguna eins og hægt er með fræðslu,
öndunaræfingum og leikfimi.
Rætt er um hin ýmsú vandamál sem geta komið upp i meðgöng-
unni, hvernig best er að bregðast við þeim og reynt er að auka
skilning verðandi foreldra á því hlutverki sem bíður þeirra. Talað
er um sængurleguna og mikilvægi brjóstagjafar fyrir móður og
barn.
í lok hvers tíma gefst konunni kostur á að ,,slaka á”. Láta
þreytu og streitu líða úr líkamanum og einbeita huganum við það
eitt að hvíla og slaka á öllum vöðvum og taugum líkamans. Takist
konunni að læra þessa tækni og nota á réttan hátt kemur það
henni að góðu haldi í fæðingunni við að nýta sem best þær hvíldir
sem gefast á milli hríða.
Eftir fæðingu ættu allar konur að stunda leikfimisæfingar sem
þær fá upplýsingar um í sængurlegu. Flýtir það fyrir uppbyggingu
og endurhæfingu líkamans, s.s. grindarbotnsvöðvanna sem mest
mæðir á í meðgöngu og fæðingu.
HLIMII.DIR:
(ílósur og punklar l'rú (iuómundi Jóhannessyni, Hvu S. Hinarsdóllur oy
Sigurði S. Magnússyni, Krislinu I. Tómasdóllur Svövu SlcliinsdólInr