Ljósmæðrablaðið - 01.04.1980, Blaðsíða 15
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 15
Hafi móðurinni verið gefið síðara lyfið hefur komið í ljós að
barninu berast 65 mg af því í 500 ml af mjólk.
Flest önnur sulfalyf berast þó í miklu minna nagni í mjólkina.
En sulfa binst albumin í blóði og keppir þar við bilirubin að bind-
ast albumini, það er viss hætta á að bilirubinið ýtist til hliðar og
óbundið bilirubin getur því valdið gulu (kernicterus) jafnvel þótt
bilirubinmagn mælist ekki mikið.
Eftir að barnið hefur lifað í nokkra daga virðist hætta á slíkum
truflunum minnka mikið.
Penicillin er venjulega úr sýrum og finnst aðeins í litlum mæli í
mjólkinni.
Magnið eykst lítið sem ekkert í blóði barnsins, þannig að það
nái lækningaskömmtum (terapentiskri koncentration). En það
getur haft áhrif á þarmaflóru barnsins, og viss hætta getur verið á
ofnæmi (sensibiliseringu). Almennt er þó talið hættulaust að gefa
mæðrum með börn á brjósti Penicillin.
Streptomycin finnst i brjóstamjólk löngu eftir að því hefur
verið dælt í vöðva konunnar, talið er að það geti orsakað ofnæmi
(sensibiliseringu), haft skaðleg áhrif á heyrnartaugina og haft
áhrif á þarmaflóru barnsins, bakteríur geti þróað ónæmi fyrir
Streptomycini (orðið resistens fyrir lyfinu). Streptomycin skal því
ekki gefa konum með börn á brjósti, og ekki heldur lyfin Kana-
mycin og Gentamycin.
Tetracyclin lyf berast í mismunandi mæli í brjóstamjólk. Vitað
er að það getur valdið tannskemmdum, þar sem litur glerjungs
tanna breytist, og einnig valdið truflun á beinvef barnsins. Hér á
landi er ófriskum konum og konum með börn á brjósti ekki gefið
Tetracyclin lyf.
Chloramphenicol berst í brjóstamjólk og þéttleiki þess er um
það bil helmingur þess sem er í blóðvökva (plasma). Skal því ekki
gefa það mæðrum með börn á brjósti, útskilnaður þess efnis er
erfiður ungbörnum.
Aukaverkanir af lyfinu er ofnæmi og einnig geta komið
blóðbreytingar svo sem aplastik anemi og agranulocytose.
Nitrofurantion t.d. (Furadantin®) berast í litlum mæli í
mjólkina og má gefa það konum með börn á brjósti.
Nalidixinsýrur t.d. (Negram®) eru álitnar berast í mjólkina.
Samkvæmt rannsóknum er skýrt frá því að 2 mg. hafi fundist i