Ljósmæðrablaðið - 01.04.1980, Blaðsíða 24
24
LJOSMÆÐRABLAÐIÐ
Atli Dagbjartsson læknir
Um bakteríu—
sýkingar hjá
nýburum
Á nýburaskeiðinu, sem af flestum er talið spanna 4 fystu vikur
lífsins, eru bakteríusýkingar einhver hættulegasti og tímafrekasti
sjúkdómaflokkur, sem fengist er við. Talið er, að um 10—20% af
nýburadauðsföllum orsakist af bakteríusýkingum og að hjá
3—5% af andvana fæddum börnum finnist bakteríusýking.1
Tíðni sepsis neonatorum er talin vera 1 af hverjum 1000 lifandi
fæddum fullburða barna og 1 af hverjum 250 lifandi fæddra
fyrirburða.2 Þar við bætast svo hin mörgu tilfelli af húðsýkingum
nýfæddra, ennfremur naflasýkingar, lungnabólgur og þvagfæra-
sýkingar.
Pathofysiologia
Af því, sem að ofan er sagt, má ljóst vera, að bakteríusýkingar
eru mun algengari og hættulegri nýburum en öðrum aldursflokk-
um. Orsakir þessa eru margþættar.
Ónæmiskerfi nýfæddra barna eru vanþroskuð. Til þess að
mynda ónæmi þarf líkaminn áreiti. Verndaður í móðurkviði af
belgjum og legvatni verður líkami fóstursins ekki fyrir því áreiti